Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 149
MENNTAMENN
Hver eru „hámarksskilyrði“ þess að fallast megi á að hugtakið „mennta-
maður“ eigi við? Má leggja tiltekinn mæhkvarða á athafhir menntamanna
í öllum sínum margbreytileika og greina hvernig þær eru í eðli sínu ólíkar
athöfnum annarra þjóðfélagshópa? Hvað þetta snertir virðast mér algeng-
ustu aðferðafræðilegu mistökin felast í því að leita að þessum mæhkvarða
til að greina hópana að í eiginlegu eðli vitsmunalegra athafna en ekki í
heild þess tengslakerfis þar sem þessar athafnir (og þar af leiðandi þeir
hópar sem þær persónugera) eiga sér sinn tiltekna stað innan hinnar
almennu heildar þjóðfélagslegra tengsla. Og í rauninni er verkamaðurinn
eða öreiginn, til dæmis, ekki sérstaklega tengdur líkamlegri vinnu eða
vinnu með tæki, heldur því að vinna við ákveðnar aðstæður og innan vissra
félagslegra tengsla (svo að ekki sé minnst á þá skoðun að vinna sem er að
öllu leyti líkamleg er ekki til og þar að auki er orðtak Taylors um „þjálfaða
górillu“9 myndlíking sem ætlað er að varpa ljósi á jaðartilvikið: í hvers kyns
líkamlegri vinnu, meira að segja þeirri sem er vélrænust og þar sem nið-
urlægingin er mest, er til staðar tæknileg lágmarkskunnátta, þ.e. skapandi
vitsmunalegar athafnir í einhverjum mæh). Og við höfum þegar veitt því
athygli að atvinnurekandinn innir sjálfur tiltekna starfsemi af hendi og þarf
því að búa yfir einhverri kunnáttu sem er vitsmunalegs eðhs, þótt hlutur
hans í samfélaginu sé ekki ákvarðaður af henni heldur hinum almennu
félagslegu tengslum sem einkenna sérstaklega stöðu atvinntuekanda í
iðnaði.
Því mætti segja að allir menn séu menntamenn - en ekki gegni þó allir
hlutverki menntamanna í samfélaginu (þó að fyrir komi að allir spæli ein-
hvem tímann egg eða saumi saman rifu á jakka segjum við ekki endilega að
alhr séu kokkar eða klæðskerar). Þannig hafa myndast sérhæfðir flokkar í
sögunni sem annast vitsmunalegt starf menntamanna. Þeir myndast í
tengslum við alla aðra þjóðfélagshópa, en þó einkum þá mikilvægustu, og
þeir ganga í gegnum víðtækari og flóknari þróun en ella vegna tengslanna
við hinn ráðandi þjóðfélagshóp. Eitt mikilvægasta einkenni hvers þess
hóps sem stefiúr á vit yfirráða er barátta hans fyrir því að vinna hinu hefð-
bundnu menntamenn „hugmyndafræðilega“ á sitt band og sölsa þá undir
sig, en hraði og áhrifamáttur þessarar liðsöfnunar og landvinninga eykst
samhliða því að viðkomandi hópur elur með sér sína eigin náttúmlegu
menntamenn. Sú gríðarlega þróun á starfsemi og skipulagi menntunar í
anda skólaspeki (í víðum skilningi) í þeim samfélögum sem miðaldir ólu af
9 [Frederick W. Taylor (1856-1915) var bandarískur verkffæðingur sem reyndi með
skrifum sínum að bæta skilvirkni í iðnaði. - Þýð. ]
147