Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 6

Frjáls verslun - 01.10.2006, Page 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 Dana því þegar Capacent Gallup spurði um umfjöllun Ekstrablaðsins sögðust um 72% ekki hafa lesið eða heyrt um hana. Skýringin er m.a. sú að enginn annar danskur fjölmiðill tók málið upp og fylgdi því eftir. Það segir líklegast mest um skrif Ekstrablaðsins. ÞÓTT VIÐHORF DANA og Íslendinga séu jákvæð í garð fyrirtækja og athafnamanna þá hefur það alls ekki alltaf verið þannig. Ef við horfum t.d. til íslensks við- skiptalífs þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að sjá mikla flokkadrætti innan þess. Fólk leit á sum fyrirtæki sem trúfélög – svo mikil var tryggðin og hollustan við þau. Viðskiptalífið skiptist þá upp í Sambandið, einka- geirann og ríkið varðandi eignarhald á fyrirtækjum. Og menn voru annaðhvort með eða á móti Sambandinu og kaupfélögunum. ÆTLI KEA Á Akureyri sé ekki þekktasta trúfélagið. Hollusta Akureyringa við þetta kaupfélag var slík að Pálmi heitinn Jónsson í Hagkaupum sýndi mikla dirfsku þegar hann opnaði þar Hagkaupsverslun og bauð Kea byrginn. Obbinn af Akureyringum tóku honum ekki vel vegna þess að hann var ekki Akureyringur. Sama var upp á teningnum þegar Bónus opnaði þar verslun. Það átti nú ekki að styrkja einhverja kaupmenn úr Reykjavík „og láta peningana renna suður“. Í Reykjavík var sömuleiðis fullt af fólki sem tók þátt í þessum leik af heilum hug. Það skipti við Skeljung og Olís vegna þess að það ólst upp við að vera á móti Sambandinu og Olíufélaginu. Ég hef áður sagt það að þetta fólk varð frekar bensínlaust en dæla á tankinn frá andstæðingunum. Með aukinni hnattvæðingu í viðskiptum og frjálsum fjármagnsflutn- ingum lætur fólk sér fátt um finnast hverjir eiga fyr- irtækin. Auðvitað verða alltaf einhverjir sem geta ekki hugsað sér að skipta við þennan eða hinn. En fólk hugsar fyrst og fremst um það hvort fyrirtækin veiti góða þjón- ustu og bjóði lágt vöruverð. Þannig er það alls staðar. ERLENDIS HEFUR MIKIÐ verið skrifað um að íslensku kaupsýslumennirnir fari hratt og endalaust hefur verið spurt um hvaðan þeir fái peningana. En ekki ber á öðru en að jákvæðni gæti í garð þeirra og að þeim sé vel tekið. Flestum stendur þó nákvæmlega á sama um þá; á meðan þeir útvega fólki vinnu og bjóða góða þjónustu og lágt vöruverð. Tími trúfélaga í viðskiptum er liðinn undir lok. Jón G. Hauksson NÝLEGA VAR ÞVÍ slegið upp að könnun Capacent Gallup á viðhorfum Dana til íslenskra kaupsýslumanna hefði leitt í ljós að þriðjungur Dana væri jákvæður í garð þeirra, en að einn af hverjum tíu væri neikvæður. Lang- flestir voru hins vegar hlutlausir, eða um 58%. Ég held að þetta hljóti að teljast mjög viðunandi niðurstaða fyrir íslensku kaupsýslumennina. En þarf þetta að koma svo mjög á óvart? FÓLK LÆTUR SIG miklu minna varða en áður hverjir eiga fyrirtækin svo fremi sem þau standa sig vel og bjóða góða þjónustu og lágt vöruverð. Þannig er þetta úti um allan heim. Áhrifafólk í erlendu viðskiptalífi lætur sig hins vegar meira varða hverjir eiga fyrirtækin og standa að baki þeim. Á þeim vettvangi bendir margt til að íslensku kaupsýslumennirnir njóti talsverðrar virðingar. Kaup Björgólfs Guðmundssonar og Eggerts Magnússonar á breska úrvalsdeildarliðinu West Ham mælt- ust afar vel fyrir. Þá sýnir nýleg frétt um að breska tískutímaritið Drapers Fashion magazine hafi valið Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs Group, annan áhrifamesta manninn í breskum tískuiðnaði, og Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóra Baugs Group í Bretlandi, þann fjórtánda áhrifamesta, að borin er virðing fyrir þeim og að þeir eru hátt skrifaðir á meðal áhrifafólks í bresku viðskiptalífi. JÁKVÆÐNI Í GARÐ fyrirtækja og eig- enda þeirra er yfirleitt almenn og mikil. Fyrirtæki þurfa nánast að hafa gert einhvern fjárann af sér og komið illa við neytendur til fá almenningsálitið upp á móti sér. Þetta hefur komið berlega í ljós í árlegum könnunum Frjálsrar verslunar um vinsælustu fyrirtæki. Þegar spurt er hvort viðkomandi geti nefnt eitt til þrjú fyrirtæki, sem hann hafi neikvætt viðhorf til, verður oftast fátt um svör og mælist neikvæðnin í mesta lagi um 10% - líkt og í viðhorfi Dana til íslensku kaupsýslumannanna. KÖNNUNIN Á VIÐHORFI Dana til íslensku kaupsýslumannanna var gerð eftir mjög harðskeytta og óvægna umfjöllun Ekstrablaðsins sem hélt því fram í stórum greinaflokki að þeir væru nánast upp til hópa bófar og skúrkar með óhreint mjöl í pokahorninu. Þessi skrif blaðsins hafa hins vegar ekki náð að fanga athygli HVERJIR EIGA FYRIRTÆKIN? Flestum stendur á sama RITSTJÓRNARGREIN Jákvæðni er í garð íslensku kaupahéðnanna og þeim er vel tekið. En flestum stendur þó nákvæmlega á sama um þá; á meðan þeir útvega fólki vinnu og bjóða góða þjónustu og lágt vöruverð. Icebank er viðskiptabanki sem leggur áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi gagnvart sparisjóðum, innlendum sem erlendum fjármálafyrirtækjum og öðrum stærri aðilum. Icebank hefur verið í eigu sparisjóðanna í 20 ár en ólíkt þeim á hann ekki viðskipti við almenning. Icebank veitir fyrirtækjum, fagfjárfestum og öðrum umsvifamiklum viðskiptavinum innanlands sem utan sérhæfða þjónustu. Bankinn fylgir íslenskum félögum eftir í útrás með ráðgjöf, lánveitingum og þátttöku í fjárfestingum. Sparisjóðabanki Íslands hefur skipt um nafn Við erum www.icebank.is A P a lm an n at e n g sl / H 2 h ö n n u n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.