Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 13

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 13
Kristinn E. Andrésson Minnisblöð um leynifundi þing- manna um herstöðvamálið 1945 Því hefur löngum verið haldið á loft að bandaríkjamenn hafi fyrstir er- lendra þjóða viðurkennt stofnun lýðveldis á Islandi 1944, sent hingað sér- stakan erindreka og greitt fyrir viðurkenningu ríkja svo sem Suður-Ameríku- ríkja. Þessu má ekki gleyma, segja hollvinir bandaríkjamanna hérlendir. Hina hliðina á málinu hafa þeir sömu ekki verið jafn glaðbeittir að gaumgæfa og auglýsa: að á sama tíma og kveðjan frá Roosevelt forseta barst um hinn fornhelga stað, Þingvöll, sátu hann og bandarísk stjórnvöld á svikráðum við lýðveldið. Þegar á næsta ári kom það í ljós (sbr. grein Þórs Whitehead: „Stór- veldin og lýðveldið" í Skírni 1973). Þann 1. okt. 1945 afhenti Bandaríkjastjórn formlega beiðni um leigu þriggja herstöðva á Islandi (í Keflavík, Fossvogi og Hvalfirði) til langs tíma. Málið hafði verið á döfinni í þessu formi í nokkrar vikur og Olafur Thors vitað um það en tilkynnt bandaríkjamönnum að beiðnin væri „með öllu ótímabær". Sumir íslenskir stjórnmálamenn höfðu gert ráð fyrir einhverjum slíkum kvöðum með inngöngu Islands í Sameinuðu þjóðirnar — þó ekki her í landinu á friðartímum — en nú komu bandaríkjamenn með kröfur sínar sem þeir jafnframt tilkynnm sendiherra sínum hér að væru „ófrávikj- anlegar". Þetta var brot á samkomulagi stórveldanna um að eftir styrjöldina yrði komið á einhvers konar öryggiskerfi á vegum Sameinuðu þjóðanna. Allur gangur þessa máls er rækilega rakinn í grein Þórs Whitehead í Skírni 1976, „Lýðveldi og herstöðvar". Þessar kröfur og Keflavíkursamningur 1946 sem fylgdi í kjölfarið ollu svo mikilli ólgu í landinu að augljóst var að framferði bandaríkjamanna var hreint reiðarslag. Síðan kom innganga í Atlantshafsbandalag 1949 og 1951 ruddist bandarískur her inn í landið. Allan tímann síðan hefur verið unnið að því kerfisbundið að sigra þjóðina innan frá. Svo sem kunnugt er hafa sumir þeir sem við sögu komu orðið til að skrifa endurminningar sínar frá þessum tíma. Er skemmst frá því að segja að rit þeirra íslenskra manna sem slíkt hafa gert veita engar upplýsingar í málinu nú, rúmlega 30 árum síðar. Hins vegar er farið að gefa út ýmis frumgögn um þá atburði sem leiddu til Keflavíkursamnings og eru stjórnarskjöl banda- rísk einkum hnýsileg í því sambandi, sem við er að búast. 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.