Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Blaðsíða 32
Tímarit Máls og menningar
það kalt vanþakklæti. Þannig er honum innanbrjósts, þegar hann er ein-
hvern dag sem oftar að blaða í Holinsheds-annálum og finnur söguna af
Lé konungi, gjafaranum mikla. Með sama hugarfari les hann leikritið
gamla um Lé konung, sem samið var á árunum 1593—94 og bar heitið
Hin forna saga af Lír konungi. Þarna fann Shakespeare það sem hann
þurfti við, hálfhnoðaðan leir, sem hann gat myndað af líkneskjur manna,
einar sér og fleiri saman. Þarna var komið tem, sem hann kunni með að
fara, einmitt í þessari yfirborðs-leikgerð fornsögu, sem fjallar tun ofboðs-
legt vanþakklæti. Og svo fal hann þetta yrkisefni í hjarta sér, og bjó yfir
því, unz það öðlaðist líf í vitund hans.
Fara má nærri um það, hvenær Shakespeare var að fást við Lé konung.
Arið 1604 kom út Yfirlýsing um páfablekkingar eftir Hasnet, og þótt eigi
kæmi fleira til, má telja víst, að leikritið sé ekki samið fyrr, því þangað
hefur Shakespeare sótt nöfnin á nokkrum þeirra djöfla, sem Játgeir ræðir
um (III, 4). Það gat hins vegar ekki orðið til síðar en 1606, því 26. desemb-
er það ár var það leikið fyrir Jakob konung. Það sést á því, að það er fært
á bóksöluskrá 26. nóvember 1607 með svofelldri athugasemd: „Leikið
fyrir Hans Konunglegu Hátign í Whitehall á Stefánsmessu að næst liðn-
um jólum“. Raunar má fara enn nær um tímann. Þegar jarlinn á Glostri
(1,2) segir að „þessir myrkvar“ hafi orðið „nýverið“, þá er vafalaust að
hann á við sólmyrkvann í október 1605; og það sem hann því næst segir
um „slægð, fláræði, svikráð" og hvers konar illvíga ófremd, sem nú leiki
lausum hala, á hann að líkindum við púðursamsærið mikla, sem upp komst
í nóvember 1605. Það var semsé í árslok 1605, að Shakespeare hófst
handa um Lé konung.
Sjálf sagan var gömul og kunn. Fyrst varð Geoffroy af Monmouth til
að segja hana á latínu í riti sínu Historia Britonum, en á ensku sagði
Layamon hana fyrstur í Brut um 1205. I upphafi kom hún frá Wales og
bar glöggan keltneskan svip, sem Shakespeare hafði lag á að varðveita
fyrir næman skilning sinn á þjóðlegum sérkennum.
í riti Holinsheds fann Shakespeare alla megindrætti sögunnar. Lír, sonur
Baldúðs, ríkir þar yfir Bretlandi á þeirri tíð, er Jóas sat að völdum í Júða-
ríki. Dæmr hans þrjár heita Gónórilla, Regan og Kórdilja. Hann spyr
þær, hversu heitt þær elski sig, og þær svara honum á sama veg og í
harmleiknum. Kórdilja er rekin brott og giftist einum af konungum Gallíu.
Þegar eldri dæmrnar tvær hafa leikið Lír konung mjög grátt, flýr hann
á náðir Kórdilju. Hún og maður hennar vígbúast og sigla með her til
22