Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 33
Lér konungur Englands, sigrast á herjum þeirra systra og koma Lír til valda að nýju. Hann situr að ríkjum tvö ár enn, og gengur krúnan þá í arf til Kórdilju. Það gerist „árið 54 fyrir stofnun Rómaborgar, þegar Usía drottnar í Júða- ríki og Jeróbóam yfir Israel“. Hún stjórnar ríkinu fimm ár; en þegar maður hennar er fallinn frá, gera systursynir hennar uppreisn gegn henni, eyða mikinn hluta landsins, taka hana höndum og hafa í ströngu varð- haldi. Hún var sem karlmaður skapi farin og brást við svo reiðilega, að hún réð sér bana. Ekki nægðu Shakespeare frumdrættir þeir sem í þessari sögn var að finna. Þær hugmyndir sem hún vakti með honum, urðu til þess, að hann leitaði uppi söguna af Glosturjarli og sonum hans til þess að fylgja eftir gangi mála. Þá sögu sótti hann í Arkadíu eftir Philip Sidney, sem birzt hafði fyrir aðeins tveim áratugum. Inn í söguna af gjafaranum mikla, sem hlaut að launum vanþakklæti frá vondum dætrum sínum, er hann hafði rekið frá sér dótturina góðu, fléttaði hann söguna af réttvísa hertoganum, sem blekktur af rógi rekur frá sér góðan son sinn, en lætur vonda soninn hrekja sig í slíkar hörmungar, að augun eru slitin úr höfði hans. I sögu Sidneys hreppa nokkrir höfðingjar óveður mikið í konungsríkinu Galasíu og leita skjóls í helli einum. Þar hitta þeir fyrir blindan öldung og ungan mann, sem gamli maðurinn biður árangurslaust að leiða sig upp á fjallstind, svo hann geti steypt sér niður og gert enda á líf sitt. Oldungur þessi var áður þjóðhöfðingi í Pálagóníu, en fyrir „harðbrjósta vanþakklæti" sonar síns óskilgetins er hann ekki aðeins rændur ríki sínu, heldur einnig sjóninni. Bastarður þessi hefur illu heilli haft hann mjög á valdi sínu. Að hans hvömm hefur hann skipað þjónum sínum að leita hins skilgetna sonar síns út á skóg og vinna þar á honum. Sonur hans kemst undan, gengur í herþjónustu erlendis og vinnur sér frama. En er hann fréttir hve illa er komið fyrir föður sínum, heldur hann sem hraðast heimleiðis til þess að vera honum hlíf í mótlætinu. Og gegn vilja sínum safnar hann glóðum elds að höfði föður síns. Gamli maðurinn biður hina erlendu höfðingja að gera örlög sín heyrinkunn, svo að ófarir sínar megi verða hjartaprúðum syni sínum til fremdar, því að sæmdin sé hin eina umbun, sem hann geti vænzt. Leikritið gamla um Lír konung, sem Shakespeare fór að lesa, hafði fylgt annálum Holinsheds einvörðungu. Það er fróðlegt þeim sem reynir að spanna vænghafið á snilld Shakespeares. Þetta er barnalegur skáldskapur, þar sem grófar útlínur sömu meginathafna og í verki Shakespeares lykja 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.