Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Blaðsíða 53
Lér konungur — Fornar rcetur
Hér er í raun að finna beinar upplýsingar sem eru ómissandi til að ráða í
þann tragíska sannleika sem er eitt meginatriði í fléttu leikritsins. Breitt er
yfir þennan sannleika eins og svo margt annað í slíku þjóðfélagi þar sem póli-
tískur harðstjóri situr við völd. A yfirborðinu eru einræðisríki byggð algerlega
upp á kynferðislegri (kristinni) hreintrúarstefnu og hræsnisfullu siðferði sem í
raun elur af sér pólitíska, hernaðarlega og félagslega klámfengni. Utrás hennar
verður venjulega berust í athöfnum leynilögreglu slíkra gerræðisstjórna (pynd-
ingum er alltaf stjórnað af afbrigðilegum kynferðisbrjálæðingum, hvort heldur
um er að ræða stormsveitir Hitlers eða leyniþjónusmna DINA í Chile sem
hljómar eins og nafn á hóru). Að lokum segir Lér sjálfur Regan frá því að
móðir hennar hafi verið hórkona.
legði ég fæð á legstað móður þinnar
sem leiði hórkonu (II. 4, 127—28)
(I would divorce me from thy mother’s tomb
Sepulchring an adultress).
Enginn þeirra sem fjallað hafa um þetta leikrit hefur gefið gaum að þeim upp-
lýsingum sem þarna eru gefnar í textanum, menn hafa ieitt þær hjá sér og
talið skáldlegar líkingar einar. Orðið „divorce” skírskotar reyndar til þess at-
burðar þegar Hinrik VIII. leitaði fyrst opinbers leyfis páfa að skilja við fyrstu
eiginkonu sína á þeim forsendum að hjónabandið væri sifjaspell. Drottningin
hafði áður verið gift bróður Hinriks og hann hélt því fram að það hjónaband
væri í gildi enda þótt bróðir hans hefði verið dauðvona og því ekki byggt eina
sæng með konu sinni. Synjun páfa að ógilda fyrsta hjónaband Hinriks varð
tilefni til langróttækustu og afdrifaríkustu ákvörðunar konungsins, þegar hann
snerist sjálfur og sneri þjóð sinni til mótmælendatrúar. Þegar tímar liðu hafði
sú ákvörðun í för með sér hrun fornra lífshátta og upphaf nýrrar samfélags-
skipunar. Lénsvaldið leið undir lok og kapítalismi hélt innreið sína á Englandi.
10 Orðið sem notað er, „beloved", er klassískt grískt hugtak, notað um yngra aðil-
ann í ástasambandi karlmanna. Hinn eldri var nefndur „the lover“.
11 Orðið „náttúra" er grundvallarlíking innan leikritsins. Otal rannsóknir hafa
verið gerðar á þessu hugtaki eins og það birtist í leikritinu en í engri þeirra
hefur falist athugun á mikilvægi þess í tengslum við frjósemishelganir.
12 „shadowy forests”, „plenteous rivers“, „wide-skirted meads", „ample third“.
13 Lér hefur reyndar í hyggju að fremja þau sifjaspell að „giftast” Kordelíu sjálfur.
Eg elskaði hana
þó allra bezt, og hugði á hlýjar náðir
við hennar skjól (I. 1, 122—23).
(I loved her most, and thought to set my rest
On her kind nursery).
Boð hans til þjóðhöfðingja Frakklands og Borgundar að biðja um hönd dóttur
hans er því aðeins pólitískt valdaspil, hann er að spotta kynferðislíf þeirra
41