Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 81

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 81
Það kvað vera fallegt í Kína nýjum uppeldisaðferðum. Nokkrum misserum síðar er þessi forseti Kína fordæmdur um allar þorpagrundir sem höfðingi þeirra „sem velja leið kapítalismans“. Lín Píaó herstjóri er fremstur í þeirri fordæmingarherferð, skrifar formálann að sjálfu Rauða kverinu — nokkru síðar ferst hann á flótta til höfuðfjendanna í Sovétríkjunum. Og nú síðast eru höfuðpaurar menningarbyltingarinnar í haldi, bornir þungum sökum. Það er ekki nema eðlilegt að menn taki sjálfsmynd kínverja á hverjum tíma með fyrirvara. Spaugileg þróun hefur orðið hjá mörgum þeirra sem skrifa í borgaraleg blöð. I Bandaríkjunum til dæmis var kínverski kommúnistaflokkurinn lengst af kallaður útibú frá Moskvu, kínverjar þó sýnu verri djöflar en rússar. En nú um hríð hefur þar og víðar orðið algengt rómantískt frukt fyrir Kína. Það hófst með breyttri utanríkisstefnu, ferðinn Kissingers og Nixons, og eru það reyndar fleiri ritstjórar en rússneskir eða kínverskir sem leggja á sig skjótar kúvendingar. Þessi hrifning af Kína er að nokkru leyti svipuð aðdáun á Stalín sem nokkuð bar á meðal frjálslyndra borgara á fjórða áratugnum, nema hvað nú er hrifningin miklu meiri. Nú getur smndum virst svo, meira að segja í Time og Newsweek, að flest þyki gott sem Maó gjörði, eða a. m. k. stórmerkilegt. Líklega af því að í Kína er allt öðru vísi en menn eiga að venjast. Sömu menn og fussa yfir því hve fáir einkabílar séu í Moskvu, eru stórhrifnir af því að í Peking em engir einkabílar. Þeir sem sárvorkenna sovésku kvenfólki ef það er á eftir alþjóð- legri tísku em stórhrifnir af því að flestir eru í bláum stökkum í Peking. Þessi rómantík er líklega tengd lífsleiða og þá áhuga á einhverju sem er skrýtið, furðulegt, annarlegt. Moskva fær hins vegar á baukinn vegna þess að hún er orðin of lík vestrænum borgum að yfirbragði. III En hvað sem líður mati sem smndað er úr nokkurri fjarlægð þá sýnist öðru þýðingarmeira að komast sem næst hversdagsleika Kína, daglegu lífi. Eink- um lífi sveitanna þar sem mikill meirihluti þjóðarinnar býr. Og spyrja í leiðinni: Hvaða áhrif hafði menningarbyltingin fræga og hvað verður um þau nýmæli sem henni fylgdu? Er að sönnu spurt um fleira en svarað verði á mörgum bókum. En hér á eftir verður byggt á frásögnum þriggja höfunda sem allir eru einkar vinsamlegir kínverskum samfélagstilraunum. Til em nefndar China: The Revolution Continued (Byltingin heldur áfram) 67
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.