Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 93
Jaroslav Hasek
Nýliðinn Svejk
FORMÁLI
Tékkneski rithöfundurinn Jaroslav Hasek var fæddur 30. apríl árið 1883,
hann dó 3. janúar 1923 og náði þannig ekki fertugsaldri.
Mikinn hiuta þessarar stuttu ævi var aðalviðfangsefni hans drykkjuskapur.
Ritstörf hans voru ekki annað en vonlítil barátta við að klóra inn peninga
í einhverja botnlausustu skuldasúpu sem um getur. Sítimbraður heili hans
var þó svo frjór að undrum sætti og fræðimenn telja sig vita með vissu um
meira en 1200 smásögur sem hann hefur skrifað, tveir stórir doðrantar liggja
eftir hann auk tveggja skáldsagna sem glötuðust í handriti - og eru þá ótalin
ljóð hans ótalmörg og leikrit fjölmörg sem hann yfirleitt samdi í samvinnu
við aðra.
Heimsþekktur er Hasek af sögu sinni um Svejk góðadáta.
Sú saga ein mundi nægja honum til eilífrar frægðar. Þó telja ýmsir annað
stórvirki hans engu síðra. Það verk er alls ókunnugt utan heimalandsins og
hefur raunar verið sparlega gefið út þarlendis, enn sem komið er, svo torsótt
getur orðið að nálgast eintak af því.
Sú bók gæti á íslensku heitið „Saga flokksins" og segja fróðir menn sem
lesið hafa að verk þetta sé stórháskalegt tilræði við stjórnmálamenn og stjórn-
málaflokka — ekki síður en sagan af Svejk góðadáta varð hernaðaranda og
hermennsku þung í skauti.
Að forminu til er verk þetta saga stjórnmálaflokks sem á ytra borði naum-
ast greinir sig frá hverjum öðrum stjórnmálaflokki — lög, reglur og starfs-
form eins og byrja ber, slagorðin hljóma eins, eða láta að minnsta kosti all-
svipað í eyrum. Flokkur þessi hefur hins vegar fáránlega kýmni að innihaldi
þar sem aðrir flokkar hafa tómið sjálft — og það gerir gæfumuninn.
Slíkur flokkur er skemmtilegur um leið og hann gerir aðra flokka hlægi-
lega.
Enda þótt verk þetta sé hvergi nærri áreiðanlegt sagnfræðirit þá er hinu
ekki að leyna að árið 1911 stofnaði Jaroslav Hasek stjórnmálaflokk sem
hlaut nafnið „Flokkur hægfara framsóknar innan laganna marka". Sagan
segir meir að segja að hann hafi sjálfur verið í framboði við borgarstjórnar-
kosningar í Prag þetta ár og látið sér nægja eitt einasta vígorð út alla kosn-
ingabaráttuna — semsé þetta: „Við erum eini flokkurinn sem opinberlega
hefur mótmælt jarðskjálftunum í Mexikó!"
Einhver herslumunur varð til að Hasek komst ekki í borgarstjórn. En sögu
79