Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 99
Nýliðinn Svejk
„Tilkynni í undirgefni, herra lautínant, ég er með herfang: ítalskt múl-
dýr og ítalskar vélbyssur."
Þrátt fyrir þetta var Svejk góðidáti umsvifalaust færður í herfangelsið.
En nú vitum við allt um nýjustu gerðir af ítölskum vélbyssum.
Svejk góðidáti útvegar messuvín
Sjálfur hinn posmllegi herpreláti Dr. Koloman Bolotoczky hafði útnefnt
Augustin Kleinschrott til þjónustu í herbúðunum við Triente.
Það er reginmunur á vanalegum presti, borgaraklæddum sálusorgara, og
herpresti. Hinn síðarnefndi sameinar andstæðurnar trú og hermennsku al-
veg fullkomlega. Munurinn á þessum tveim drottins þjónum er viðlíka
mikill og munurinn á yfirlautínanti sem kennir reiðmennsku við heraka-
demíuna og eiganda skeiðvallar.
Herpresmr tekur laun frá ríkinu. Hann er í hernum og ber tignarmerki.
Hann má ganga með sverð og heyja einvígi. Borgaraklæddur sálusorgari
tekur líka að vísu laun frá ríkinu en verður í ofanálag að plokka fé af trúuðu
fólki eigi hann að hafa það verulega gott.
Obreyttir hermenn em ekki skyldugir til að heilsa vanalegum presti,
herpresti ber þeim að sýna tilhlýðilega virðingu. Annars eru þeir settir inn.
Drottinn á semsagt tvennslags fulltrúa hér á jörðinni, borgaraklædda og
einkennisklædda.
Verksvið borgaraklæddu sálusorgaranna er pólitískur áróður, þeir ein-
kennisbúnu annast skriftamál hermanna og láta setja þá inn. Það var þetta
sem vakti fyrir Góðum Guði forðum þegar hann skapaði heiminn og síðan
Augustin Kleinschrott.
Þegar hans æruverðugheit var að dratta sínum ógnlega kroppi um göt-
urnar í Triente þá gat manni tilsýndar þótt eins og þar færi halastjarna
sem Drottinn hefði sent þessum bæ til refsingar í reiði sinni.
Hann var hrollvekjandi í allri sinni tign og kviksögur gengu um það
að í Ungverjalandi hefði hann háð einvígi þrívegis og þá sneitt nefin af
fjöndum sínum, lítiltrúuðum offísérum. Þessar barátmaðferðir hans í viður-
eigninni við heiðindóminn höfðu einmitt orðið til þess að hann var flutmr
til Triente um þær mundir sem Svejk góðidáti slapp úr herbúðafangelsinu
og sneri til herdeildar sinnar til að þjóna ættjörðinni sem dyggilegast.
85