Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 107
Nýliðinn Svejk
Þegar offísérarnir komu í braggann þar sem Svejk góðidáti var að læra
að meðhöndla skotullina sáu þeir reykskýin stíga upp úr pípunni hans svo
þeim varð óðara ljóst að þar sat öldungis óhræddur dáti.
Ekki hafði Svejk fyrr komið auga á eftirlitsoffísérana en hann spratt
á fætur, tók útúr sér pípuna eins og lög gera ráð fyrir og lagði hana frá
sér, nánar til tekið á opna tunnu með skotull. Hann salúteraði og sagði
hátt og snjallt:
„Tilkynni í undirgefni, ekkert óvænt hér, allt í stakasta lagi.“
Það eru þau andartök í mannlífinu þegar snarræðið hefur alveg ótrú-
lega þýðingu.
I þessum hóp reyndist herra ofurstinn klókari en aðrir. Þegar tóbaks-
reykurinn var farinn að hringa sig upp úr skotullinni skipaði hann:
„Svejk, reykja áfram!“
Það var hyggileg skipun því einlægt er það betra að hafa logandi tóbaks-
pípu í munninum en skotullinni. Svejk salúteraði nú aftur og hrópaði:
„Tilkynni í undirgefni, áfram skal reykt."
Hann var hlýðinn dáti.
„Jæja, Svejk, og nú komið þér með okkur á varðstofuna! “
„Tilkynni í undirgefni, það get ég ekki því fyrirmælin segja að hér
verði ég til klukkan sex, þá verð ég leystur af. I skotullinni verður alltaf
einhver að vera svo ekkert komi fyrir! “
Herra eftirlitsoffísérarnir smeygðu sér útfyrir og hlupu svo á varðstof-
una þar sem þeir gáfu skipun um að lögregluflokkur yrði látinn sækja
Svejk.
Lögregluflokkurinn var ófús til fararinnar en fór þó.
Þegar þeir komu að bragganum þar sem Svejk góðidáti sat í skotullinni
með glóandi pípu sína og þjónaði hans tign, keisaranum, öskraði korpór-
allinn:
„Svejk, skepnan, fleygðu pípunni út um gluggann og komdu svo!“
„Eg held nú síður. Herra ofurstinn skipaði mér að reykja áfram svo ég
verð að reykja mig í tætlur.“
„Komdu þér út, skíthæll!“
„Biðst afsökunar í undirgefni, kem mér ekki út. Klukkan er ekki nema
fégur og það má ekki leysa mig af fyrr en klukkan sex. Til klukkan sex
ber mér að vera hér í skotullinni svo ekkert komi fyrir. Eg er svo var...“
Honum vannst ekki tími til að segja „færinn“. Trúlega hafið þið líka
lesið um slysið skelfilega í vopnabúrinu sem olli þjóðarsorg í Austurríki,
93