Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 117

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 117
Blómstrandi kvendýr margt) og er hún trúlega fáguð af þessari (innri) baráttu við náttúruöflin. Ennfremur sýnast þessi þunglamalegheit eiga rætur í bókmenntaarfi þjóð- arinnar og virðingu fyrir einhverju „rótgrónu“ villimannaeðli. (Þegar útlendingar eru að henda gaman að íslendingum og segja við þá: „Þið eruð víkingar“ þá hlýnar þeim um hjartarætur og færast þá oft í aukana). Þetta þjóðareinkenni hefur af íslenskum listvinum verið uppnefnt „ástríða“, „eldur“, „flug“, eða ef ósjálfráð skrift menningarskriffinnanna fær alveg að ráða ferðinni: „snilligáfa“. Islenska kergjan og æðruleysið eru (að mörgu leyti) karl- og kvenkyns form ofannefndra þunglamalegheita. Þriðja uppsprettan er antarböndin eða xttarsamfélagib sem hér teygir angana víðar og býr yfir meira afli vegna fámennis (og dreifbýlis) en gerist hjá flestum öðrum þjóðum. Það góða við það er, að það lítur út fyrir að vera gætt miklu umburðarlyndi gagnvart mannlegum breyskleika svo sem fylliríum, framhjáhöldum, hjónaskilnuðum, vanskilum og smáglæpum. Að hinu leytinu er það furðu sjálfhverft, stendur oft í vegi fyrir heilbrigðri framrás og beitir þá útskúfunar- eða einangrunartilburðum til að bægja aðsteðjandi „hættum“ frá. („Svartir sauðir“ hafa ætíð verið algengir á Islandi, og víðsvegar í þjóðlífinu hafa samansaumuð „ættarveldi" löngum grafið um sig). En gagngerust áhrif ættarsamfélagsins íslenska er að finna í „listinni" í hinum heimilislega tón (eða vingjarnlega masi) þjóðlegra fræða. (A seinni árum hefur komið fram skrýtin samsuða „einangrunarhræðslu“ og „ættarsamfélags" í hinu svokallaða „þjóðháttapoppi“ sem hefur m.a. stungið sér niður í list, auglýsingum, skemmtiiðnaði, áhuga á „gömlu“ og víðar). A okkar tímum stefnir í að listasaga síðustu 20 — 30 ára verði skráð í þessum „stíl“ þjóðlegra fræða, (eins og flest sem hefur verið skrifað um list hérlendis fram að þessu) sem minnir á íslenska þýfið, þ.e. hvorki tún né hólar. Þar er flest skoðað utanfrá og þegar listin á í hlut eru listamennirnir vegnir og metnir en verkin látin fúna „óséð“ á haugum. Þegar íslenskir listamenn (og aðrir) leiðast út í einhver afbrigði „þjóð- legra fræða“ eða „þjóðháttapopps", vanalega um og uppúr fertugu, eru þeir trúlega (kannski ómeðvitað) að endurgreiða ættarsamfélaginu það sem því ber fyrir að hafa umborið breyskleika þeirra. (Sem sjaldan er nokkuð verra en fyllirí, leti eða lauslæti). V. Myndlist sem slík er fyrst og fremst vísindi um myndmál, og niðurstöður þeirra vísinda eru um hegðun (eðli) forma á myndfleti. (I þessu sambandi 379
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.