Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 53

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 53
Hvað er póstmódernismi? ar, einsog Christa Wolf hefur gert í Kassöndru og Svava Jakobsdóttir í Gunn- laðarsögu. Hversu mikilvæg er írónía sem einkenni hinnar póstmódernísku endur- vinnslu? Irónía getur reynst óáreiðanlegur merkingargrundvöllur, því hún sér ekki sjálf um að velja það sem hún skopast að, sem er það sama og færir henni gildi. Sem dæmi um póstmóderníska afstöðu tekur Umberto Eco orðræðu manns sem ann mjög „kúltíveraðri" konu en finnur að hann getur ekki sagt „ég er friðlaus af ást til þín“ því að hann veit að Barbara Cartland er búin að skrifa þessa setningu. I þrengingum sínum finnur maðurinn þá lausn að segja: „eins- og Barbara Cartland myndi orða það, ég er friðlaus af ást til þín“.37 Irónían á þá að endurleysa orðin úr fölsku sakleysi og reisa merkingu þeirra úr rúst. En geta allar hefðir staðið undir „kúltíveraðri" íróníu? Getur ekki verið að sumir hlutir séu hreinlega of flatneskjulegir til að við förum að nota þá í írónískum tilgangi? Einhverjir talsmenn póstmódernismans myndu líklega segja að spurningar sem þessar endurspegluðu hámenningarafstöðu sem komin væri í þrot ásamt módernismanum. Nú geta menn haft alla menninguna undir, því kemur ekki á óvart að hugtakið plúralismi er farið að heyrast í auknum mæli í tengslum við póstmódernisma. Búið er að kollvarpa hugmyndum um existensíalísk gildi, öll höft eru hrunin og „allt gengur", svo notað sé orðalag sem oft heyrist. Og þetta á ekki bara við um listir, því umræðan um póstmódernismann hefur einn- ig snúist um það sem kalla mætti fagurfræði tíðarandans og sem slíkur hefur hann kallað á almenna menningarrýni fremur en skilgreiningar innan takmark- aðrar listastefnu. Póstmódernismi lítur oft út fyrir að vera í senn fagurfræði og hugmyndafræði hins plúralíska samfélags. Hugtakið plúralismi á sér tvímælalaust aðlaðandi hlið. Það bendir á umburð- arlyndi og gagnkvæmt tillit og það getur borið uppi hugmyndir okkar um út- ópíu, margradda samfélag sem virðir á jafnræðisgrundvelli starfsemi og framlag allra einstaklinga og hópa. Það getur vel að merkja verið leiðarljós í fræði- mennsku - í rannsókn þessari er t.d. reynt að gefa svolítið plúralíska mynd af hugtakinu póstmódernismi. Hægt er að benda á listrænar hræringar sem virð- ast einkennast af plúralisma. Eitt mesta afl í bókmenntalífi Vestur-Þýskalands eftir seinni heimsstyrjöldina var „Gruppe 47“ og innan þess hóps urðu til hinar fjölbreytilegustu bókmenntir, ýmist hefðbundnar eða tilraunakenndar. En líktog hugmyndir um hjónasæng módernisma og raunsæis geta gleraugu plúralismans orðið til þess að við missum sjónar á átökum ólíkra menningar- afla. Meðal þeirra sem skrifað hafa um hið „póstmóderna ástand“ á breiðum grunni er Frakkinn Lyotard sem ég vék að hér að framan. Hann telur þetta ástand felast í dauða yfirgripsmikilla sögulegra skýringa eða „frumsagna“, endalokum jafnt hugmyndakerfa eins og marxismans og almennra hugmynda um framþróun mannsandans eða frelsisleit mannsins á vegum sívaxandi þekk- ingarforða eða pólitískrar baráttu.38 Einsog sumir aðrir gamlir vinstrimenn í 443
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.