Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 56

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 56
Tímarit Máls og menningar menningu almennt; hún er safn eftirmynda sem breytt hafa heiminum í „hýp- erveruleika“. Hann telur og að um þetta dugi ekki að setja fram hefðbundna félagsfræði um afbrigðilega firringu, því þessi firring sé orðin manninum alveg eðlilegt ástand. Jafnframt telur hann að marxískar kenningar um framleibslu sem tengi- lið náttúru og menningar séu brostnar. Veruleiki okkar grundvallast á stöðugri endurframleibslu eftirmynda sem ekki þurfa lengur fyrst og fremst að uppfylla þarfir okkar. Nauðþurftir eru orðnar sjálfsagt aukaatriði í heimi sem byggist á umframneyslu. Til að skapa þá gnótt sem blasir við neysluverum nútímans er sífellt boðið upp á fjölskrúðugt samspil eftirmynda, tákna sem flotið hafa burt frá röklegum uppruna sínum. Auglýsingaiðnaðurinn er ríkuleg uppspretta slíkra tákna. Tökum einfalt dæmi um hjólbarðaauglýsingu sem auk gúmbarða skartar kvenmanni í veigalitlum sundfatnaði. Hjólbarðar og þessi manneskja virðast ekki eiga mikið saman að sælda. Samkvæmt hefðbundinni samfélags- greiningu mætti skýra þetta með því að hjólbarðaauglýsingum sé beint til karl- manna og konunni sé ætlað að fanga hið dýrmæta augnaráð þeirra. En samkvæmt Baudrillard dugar sú skýring skammt, því í hýperveruleikan- um er búið að samþykkja samflot eftirmynda úr svo óskyldum táknheimum. Það er raunar fremur að „sundurleysið“ í auglýsingunni sem heildartákn vísi á hinn ævintýralega og víðfeðma glundroða sem neysluveran getur speglað sig í, glundroða sem spannar allar mótsagnir. Þessvegna eru stórmarkaðir ekki bara staðir sem til hagræðingar bjóða upp á ýmsar vörutegundir, heldur líka alls- herjartákn fyrir þá botnlausu hít sem þrá neysluverunnar er. Og það er hin óseðjandi þrá mannsins eftir lífsfyllingu sem tekið hefur við af beinum þörfum sem hvati í efnahagskerfi, menningu og boðskiptum. Til að vekja þessa þrá þurfa eftirmyndirnar ekki að vísa á neitt eðlilegt inntak, því hlutverk þeirra er einungis að txla með yfirborðinu. Þessi leikur tælandi yfirborðs og þrár gerir jafnframt neysluveruna sjálfa að hlutveru eða viðfangi (,,objekti“) í heimi hýp- erveruleikans. Þeir sem hafa reynt að kyngja þessari hrikalegu mynd af samtímamenningu okkar kunna nú að spyrja hver staða listarinnar sé í heimi sem þessum. Ef við fylgjum þankagangi Baudrillards46 má álykta sem svo að í hýperveruleikanum (sem er þá eiginlega póstsögulegur miðað við þann vestræna nútíma sem ég lýsti snemma í þessari grein) sé listin ekki lengur aukaatriði í hápraktísku sam- félagi. Hún er raunar fullkominn grundvöllur fyrir bruðltilveru samfélags sem þarf ekki lengur að vera praktískt. Og sumir hafa einmitt litið svo á að póst- módernismi felist meðal annars í skáldlegri fegrun hversdagsins. Og hefur listin verið ásökuð, líktog trúarbrögðin, fyrir að bjóða upp á flótta frá hversdagslífi. En nú eru það kannski listræn vinnubrögð sem ýta undir fólk að flýja inn í hversdaginn, týna sjálfu sér í gnótt hans og myndríki. Er Kringlan ekki eitt sundurlaust en þó samhangandi listaverk þar sem fólk getur látið sig fljóta áfram í táknflæði neysluheimsins? 446
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.