Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Síða 59

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Síða 59
Hvað er póstmódernismi? sjálfstæði listarinnar (sem í sjálfu sér byggir á e.k. frumsögu) upp í æðra veldi þar sem „hreinleiki" hennar hindraði veraldleg boðskipti. Þessvegna er það svo að á meðan sumir telja póstmódernisma vera módernisma, sem þarf alltaf að ganga lengra til að yfirsu'ga stöðnunarmörk, þá líta aðrir svo á að módern- isminn hafi lokað leið listarinnar til samfélagsins og róttækni póstmódernism- ans liggi í meðvituðu afturhvarfi til félagslegra vensla. Ef til vill má sjá visst millistig í stílblönduninni eða sundurleysinu sem einnig var vikið að; verkið byggist á endurtekningu eldri hefða sem samt er teflt svo villt saman að tryggt sé að landamæri hverrar um sig falli ekki í fyrri skorður (einsog kann að gerast í hófsamari endurvinnslu hefða). Umræðan um póstmódernismann sprettur því mjög af átökum um leshátt og landamæri í kjölfar þess rasks sem módernisminn hefur valdið. Þetta kemur einkar vel fram hjá þeim arfþega módernismans sem farið hefur einsog eldur um völl (ég þori ekki að segja sinu) húmanískra fræða á síðustu tveimur áratug- um; póststrúktúralismanum svonefnda. Hann er ekki afmörkuð stefna eða „skóli“, heldur samheiti á vissum tilhneigingum fræðimanna á ýmsum sviðum. Forsprakkarnir hafa flestir starfað í Frakklandi, m.a. Jacques Lacan, Roland Barthes, Michel Foucault, Jacques Derrida og Julia Kristeva. Sumir þeirra hafa einnig verið viðriðnir strúktúralisma, en þarsem strúktúralisminn sýnir fram á ýmis grunnmynstur mannlegra athafna og merkingar, oft með beitingu tvennd- arkerfa, þar vinnur póststrúktúralisminn að því að leysa merkingarhnúta, ekki síst þá sem halda saman annars vegar sjálfsverunni (subjektinu) og hins vegar tákninu (sem tvenndarkerfi táknmyndar og táknmiða). Engin leið er að gefa sanngjarna mynd af póststrúktúralisma í stuttu máli, en áhersla Lacans á það hvernig skilningur er ætíð mfs-skilningur segir sína sögu sem og sá munur sem Derrida sér milli táknmyndar og táknmiðs og veldur því að sú samsvörun sem virðist liggja tákni og boðskiptum til grundvallar er ætíð fallvölt. Hinsvegar er einnig kippt fæti undan þeim mun sem sýnist vera rökleg undirstaða skilnings, t.d. muninum á miðju og jaðri. Þannig fer fram sundur- liðun eða afbygging („deconstruction") þess boðskiptakerfis sem á að tryggja okkur skilning. Areiðanleg merking hrekkur uppaf standinum og við erum hrifin í leik tungumálsins þar sem leynast ótal mótsagnir og þar sem hið heild- stæða sjálf mannsins liðast sundur líktog allar þær frumsögur sem það reynir að halda sér í. Ekki er erfitt að sjá skyldleika með kenningum póststrúktúralistanna og þeirri fagurfræði sem módernismi ástundar, enda hafa sumir þeirra átt mikið saman við módernisma að sælda. En það er ekki aðeins að líta megi á margar kenningar þeirra sem útlistun á módernisma, heldur stunda þeir oftar en ekki sjálfir þessar aðferðir í fræðimennsku sinni. Þar með rjúfa þeir landamærin á milli skáldskapar og fræðimennsku, listar og heimspeki. Auk þess hafa þeir lítt skeytt um þá sérhæfingu sem tekin var að setja mark sitt á húmanískar greinar 449
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.