Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 109

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Side 109
hlutir eiga fyrir henni sinn tíma, svo er hann liðinn og ekkert mál. Hún er full- trúi lesenda í bókinni sem eins og hún verða að læra að tíminn er langt í frá einfalt mál. Kaldaljós er vel heppnuð áróðursbók fyrir náttúrulegum tíma. Vigdís reynir að undirbyggja tilfinn- inguna um að allur tími sé til í einu með því að gefa fyrri hluta sögunnar tíma- lausan svip, setja hann niður í þorpi sem framfarirnar hafa sneitt hjá og er hægt og hægt að deyja í banvænum faðmi Tinds, fjallsins sem gnæfir yfir litlu byggðinni og er á hverri mynd sem Grímur teiknar í æsku. I firðinum er líka „aðalbyggð". Þar er framtíðin. Lengi framan af bók er lesandi staddur á einhvers konar aldamótaárum ís- lenskra bernskuminninga með mönnum sem róa og konum sem bera þvott milli byggða á sjálfum sér. Hvergi er bíll, sími, útvarp. Það er þess vegna með nokkurri van- trú sem maður fer að rekast á merki þess að sagan gerist eftir miðja öld. Pabbi Gríms fer með Tímann og vatnið (sem kom út 1948) og hvað eftir annað er talað um skáldkonu fjarðarins og byggðarinnar sem varð að skipta um fjöll þegar hún fór suður. Hér er vísað í ljóð úr bókinni Dvergliljum eftir Vil- borgu Dagbjartsdóttur frá 1968. Þegar sagan er þar með komin fram um 1970 verður fjarvera nútímasamfélags fárán- leg, tímaleysi verður tímaskekkja sem truflar. Grímur getur vel verið náttúru- barn og tákn listamanna allra tíma þótt hann lifi bersýnilega í sínum tíma, aftur á móti verður táknið tómt ef það vísar ekki til einhvers veruleika. Vigdísi tekst oft frábærlega að lýsa hugsunum Gríms og því sem hann sér með innri augum sínum, líka svipbrigð- um og látæði, til dæmis áráttu hans að Umsagnir um bakur sveifla hurð þegar hann er glaður sem verður ljóslifandi. En víðara ytra um- hverfi verður miklu óljósara. Aldrei tekst henni svo vel sé að draga upp af- stöðuna milli aðalbyggðarinnar og húsaþyrpingarinnar undir Tindi. Hvar er skólinn úr því að Grímur eltir Tuma úr skólanum og út í aðalbyggð? Hvar er bryggjan í þorpi Gríms til dæmis miðað við kofa Alfrúnar sem stendur við sjó- inn? Á hvers konar farartæki kemur breiðnefjaði aðkomumaðurinn sem tæl- ir Indriða frá Onnu? Við sjáum hann alls ekki koma. Og hvað er kjallaraíbúð Gríms í Reykjavík eiginlega stór? Fern- ingarnir sem hann límir á veggina eru tveir sinnum tveir metrar og mér taldist til að stofan þyrfti að minnsta kosti að vera 140 fermetrar til að taka við þeim sem nefnt er að hann kaupi. Lesanda finnst hann oft fylgdarlaus um rúm sög- unnar og það er erfitt að geta ekki hreyft sig frjálslega um slóðir svo viða- mikillar og langrar sögu og byggt upp svið í huganum þar sem atvik gerast. Orð hafði borist En þó Vigdís Grímsdóttir byggi ekki vandlega svið undir atburði þá byggir hún sögu sína snilldarlega. Báðir hlutar hennar rísa til hátinda sem eru jafn- magnaðir og sætir furðu hvað henni tekst að koma lesanda fullkomlega á óvart í bæði skipti. Þó sést vel þegar sagan er lesin aftur að stoðum er vand- lega rennt undir bæði ris með fyrirboð- um að rammíslenskum hætti. Stíllinn á sögunni er auðugur og ljóð- rænn eins og efninu hæfir, sköpunar- sögu listamanns. Þorsteinn frá Hamri sagði þá sögu í fyrsta ljóðinu í fyrstu bók sinni: Það var á bæ einum að gandur mikill úr hvítum skógum trað flugstíg úr 499
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.