Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 121
skoplegu fólki. Sögumaður sjálfur er óvenjulega óviðfelldið barn, en ýmsar persónur eins og foreldrarnir, amman og Húnbogi Austfjarðagoði eða frænd- inn frá Ameríku, eru dregnar auðþekkj- anlegum dráttum. Húmor Einars og fjörlegur stíll nýtur sín hér ágætlega. En frásögnin af föðurnum og samskiptum hans við útvarpið, sem er drepfyndin í upphafi en heldur dauf í niðurlaginu, tengist lauslega við hitt aðalminnið: fjölskylduveisluna. Fjölskylduveisla er að verða mikið notað minni hjá ungum rithöfundum og fremur létt leið til að skemmta lesendum, því að allir þekkja eitthvað af persónunum beint eða af afspurn. En þessi veisla er nokkuð sundurlaus: höfuðskúrkur ættarinnar, Olafur Alexander, fær lítið tækifæri til að sýna hvað í honum býr, og pabbinn lætur lítið á sér kræla, svo að sagan dettur sundur í tvennt og verður lang- dregin þegar líða tekur á hana. Fyrri hlutinn er svo góður að það er synd að Einar skyldi ekki vanda sig meira við að ljúka henni. Af sögum með fullorðinn sögumann fannst mér minnst koma til Opus magn- um. Hún er byggð utan um eina hnyttna hugmynd sem er lok sögunnar og hámark, en aðdragandinn er líflítill og hvorki rithöfundurinn né viðfangs- efni hans verða svo lifandi að endalokin fái þau áhrif sem þeim er ætlað. I þeim þrem sögum sem eftir eru skapar höfundur einnig sögumann sem stendur fjarri honum og afhjúpar sjálfan sig að vissu marki. Brugðið er upp myndum af nöturlegu lífi í Töfrafjallinu af vanmetnum snillingum við kennslu úti á landi. Kómík sögunnar felst eink- um í sögumanni sem er naív dýrkandi gáfumanna og snillinga og drjúgur með sjálfan sig, þótt hann telji sig andstæðu Umsagnir um bakur þeirra: ættfræðing og skrásetjara. Sagan er fyndin en rís ekki alltaf yfir illkvittni. Rörsteypan og blaðið og Því enginn má fara yfir þröskuld hjá öðrum án þess að hafa dómsúrskurð fyrir því (vand- ræðalegt nafn á sögu), eru að mínum dómi áhugaverðustu sögurnar, ekki síst af því að sögumaður verður hér ráðgáta, afhjúpar sig aðeins að hluta, og er jafn- hjálparlaus í þeim ömurlega heimi sem hann lýsir og aðrar sögupersónur. I þessum tveimur sögum er heimurinn á tjá og tundri, hlægilegur og grátlegur í senn, og bygging þeirra hæfir efninu. Pær eru svipmyndir af mannlífi og enda báðar á dramatískan hátt, með einhvers konar hruni. Sagan með langa nafnið er í sjálfu sér fyndnari og mælskari. Jakobína Swift alias Elín Sigurmonsdóttir og Halli Hörrikein eru eins og afgangspersónur úr Djöflaeyjarbókunum, enda tengdar við þann heim. Erfitt kann að vera að gera raunsæislega grein fyrir stöðu sögumanns og erindum í hús þessa fólks, en það er býsna áhrifamikið hvernig í honum virðist búa sama brjál- æðið og íbúum og hann verður sem lamaður og sogast inn í vitfirringu þess- ara utangarðsmanna. Rörsteypan og blaðið er saga af tveimur mönnum á reki. Þegar annar þeirra fær fyrir misskilning þá grillu í höfuðið að hann sé efni í blaðamann, liggja leiðir þeirra saman, og sögumaður sem einhvern veginn hefur haldist á floti fram að þessu, sogast niður með drykk- felldum vininum. Skýtur að vísu upp aftur en varla til betra lífs. Sagan vekur hroll með lesandanum. Styrkur Einars Kárasonar sem smá- sagnahöfundar eru samtöl sem fela í sér hæfilega mikla skrumskælingu á því sem menn geta heyrt í kringum sig og 511
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.