Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Side 62

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Side 62
Eða: Allir þögðu. Rokkhljóðið og marrið í kömbunum var í eyrum mínum eins og þytur af einhverju vonskuveðri. (141) Þegar Jónas og Manga koma heim frá verk- um sínum rísa átökin hæst. Jónas hefur hefnt sín á Grími með því að segja Möngu frá rímunum svo að hún ræðst að Grími um leið og hún sér hann. Grímur veit í fyrstu ekki hvaðan á sig stendur veðrið. En þegar hann áttar sig á að Nonni hefur farið á bak við hann, og hæðst að Möngu ekki síður en Jónasi, bregst hann við með því að formæla drengnum: Eg vildi að þú yrðir aldrei fyrir öðru en svívirðing alla þína ævi. (143) Manga heimtar að drengurinn verði hýddur og Jónas fullyrðir að hann hafi ætlað að drepa hann með heynálinni. Fóstran lýsir því yfir að hún ráði hýðingum á bænum og sendir drenginn í háttinn. Lausn bemsku- sögunnar er svo fólgin í því að fóstran hvet- ur Nonna til að létta á hjarta sínu, m.a. með orðunum: „Og þú veist að eg kann að fyrir- gefa.“ (144) Hann segir henni alla sólar- söguna og hún veitir honum þá ástúð og þá fyrirgefningu sem hann þarfnast. Enda þótt byggingin á Marjas sé að hluta hefðbundin eins og lýst hefur verið, er hún það ekki að öllu leyti. Hún er — sem og reyndar fleira í sögunni — að nokkru sniðin að spilinu marjas og þeim reglum sem í því gilda. Orðið „marjas" er tökuorð úr ensku, sprottið af orðinu „marriage" og merkir í o raun „hjónaspil". Nafnið á sögu Einars er þá með öðrum orðum tvírætt: það er ekki aðeins löngunin til að spila spilið marjas sem leiðir drenginn Nonna í ógöngur heldur og þær tilraunir til „hjónaspils“ sem sagan segir frá, „ástaspilið" sem drengurinn hefur óafvitandi afskipti af en hefur engar for- sendur til að skilja. Þetta hafa túlkendur sögunnar eflaust alltaf vitað, samanber skýringu orðsins í „Skýringum við Lestrar- bók handa gagnfræðaskólum. 1. hefti“.9 Okkur er hins vegar ekki kunnugt um að neinn hafi minnst á að ýmis einkenni marj- asspilsins eru nýtt í frásögninni, nema það sé eitt af því sem Helgi Sæmundsson hefur í huga er hann nefnir söguna „táknræna“.10 Eins og nafnið marjas bendir til er spilið aðeins tveggja manna spil og í samræmi við það spretta átök sögunnar af því að tveir piltar þrá „hjónaspil“ við sömu konu. Hvaða litur sem er getur verið tromp í marj- asspilinu en „hjarta“ er tromp í sögu Einars. Meginmarkmið spilamanna í marjas er að fá sem flest stig. Þau geta þeir krækt í með ýmsum hætti. Þeir geta m.a. „gert“ and- stæðingnum „grikk“, fengið fjögur sams konarháspil, t.d. fjóragosa. Þeirgetaeinnig „lýst hjónum“, kunngert að á hendi séu kóngur og drottning í sama lit, eða safnað sér „blankkorti“, þ.e. öllum háspilum í sama lit eða m.ö.o. kóngsfjölskyldunni allri. Loks geta þeir safnað háspilum í slög- um meðan á spilinu stendur og orðið sér úti um „síðasta slag“. Áður en spilið hefst eru hundar, ýmist fyrirneðan sex eða sjö, lagðir til hliðar en önnur lágspil eru aðeins upp- fyllingar- eða hjálparspil við að ná stigum. Notkun hundanna í marjas kemur heim og saman við hvemig Grímur og Jónas nýta sér drenginn Nonna í sögunni til að „gera“ hvor öðmm „grikk“, samanber hina tvo hluta í meginátökunum. Grímur og Jónas „gera“ svo sýnilega báðir sinn „grikk“ til að geta um síðir „lýst hjónum“ og fengið sitt 60 TMM 1991:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.