Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 70
hann alvarlega. Neiti hann að rökstyðja skoðun sína hegðar hann sér nefnilega líkt og sá sem segist kunna járnsmíðaren neitar svo að sýna kunnáttu sína í verki. Og eins og þeir Kuhlmann og Apel benda á þá tapar liann lfkaef hann reynir aðefla skoðun sína rökum því þá viðurkennir hann ágæti rök- fræðinnar. . . . sannur skáldskapur? Gagnstætt Nietzsche virðist Eyjólfur Kjalar telja að djúp sé staðfest milli vísinda og bókmennta. Hann talar eins og öll sannindi hljóti að vera einnar rótar og andæfir þeirri skoðun að til séu sannindi sem eru pers- ónubundin og skáldleg. Staðhæfingin „öll sannindi eru persónubundin“ fellur um sig sjálfa því hún hlýtur sjálf að vera pers- ónubundin og því ekki algild. En sé hún algild þá er hún röng." Þetta er hárrétt athugað hjá Eyjólfi. En hann gerir sér ekki grein fyrir því að þótt útilokað sé að öll sannindi séu persónubundin þá er ekki þar með sagt að engin sannindi geti verið þeirr- ar náttúru. Michael Polanyi, bresk-ung- verskur fjölfræðingur, hefur gert orða- sambandið „persónuleg þekking“ að tísku í heimspeki. Inntakið í hugmyndinni um persónulega þekkingu er að við vitum meir 12 en við getum miðlað öðrum. Við eigum í engum erfiðleikum með að þekkja andlit en okkur virðist um megn að lýsa þeim með orðum svo fullnægjandi sé. Samt er þessi þekking prófanleg. Ef ég segist þekkja andlit Eyjólfs Kjalars má hæglega skera úr um sanngildi þeirrar full- yrðingar. En slíkur úrskurður upplýsir okk- urekki um þann innsæisbundna, þögla þátt sem gerir persónulega þekkingu að því sem hún er. Kunnátta af ýmsu tagi flokkast einnig undir þögla þekkingu, góður vinur minn segir að hann viti ekki hvar stafirnir á rit- vélinni eru en fingurnir viti það ágæta vel! Annað gott dæmi um þögla þekkingu er kunnátta okkar í móðurmálinu. Einstak- lingur, sem ekki veit hvað málfræði er, get- ur talað móðurmál sitt lýtalaust og leiðrétt villur annarra án þess að geta gert nokkra fræðilega grein fyrir því í hverju villumar eru fólgnar. Vissulega getur málfræðingurinn endur- gert þögla þekkingu okkar á móðurmálinu en hann getur aldrei miðlað því lífræna við þessa kunnáttu enda lærum við ekki fram- andi tungur með málfræðistagli einu sam- an. Mín hugmynd er sú að ef þess er nokkur kostur að miðla þessum lífræna þætti hljóti fagrar listir að geta lagt nokkuð af mörkum. Nærtækt er að benda á að „portrettmálari" miðlar persónubundinni þekkingu á and- litum með penslinum. Og góður höfundur getur oft klætt það í orð sem bögglast orð- vana fyrir brjóstum vorum. Tökum til dæm- is lýsingu bandaríska rithöfundarins Thom- asar Wolfes á töfrum eldsins: „He saw the wonder of it, the strangeness of it, the beauty of it, and the neamess of it“.13 Flestir þekkja töfra eldsins en fáum er gefið að lýsa þeim, til þess þarf innblásið skáld. Annað skáld, Svisslendingurinn Robert Walser, tjáir hughrif af snæviþaktri grund með svofelldum hætti: „Og það er hlýtt í öllum þessum mjúka kafasnjó, það er hlýtt eins og í notalegri stofu þar sem frómar manneskjur hafa hist til að eiga saman ljúfa stund“.14 Flestir þekkja þessa notakennd en höfundur skerpir skilning okkar á henni með samlíkingu við það sem Baunar kallar „hjemmelig hygge“. 68 TMM 1991:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.