Gripla - 20.12.2007, Blaðsíða 201
TVÖ BRÉF HELGA BISKUPS THORDERSEN
brigða sem hann olli fjölskyldu biskups og móður Gísla. Glöggt sjá af bréf-
unum að fullar sættir hafa tekist með þeim á ný, því að hér andar hver setning
vináttu og hlýju í garð Gísla. Sr. Helgi lést 4. desember 1867, en Gísli 29. maí
1888.
Reykjavík, 2. maí 1858.
Elskulegi góði vin!
Kærar þakkir fyrir bréf nú með líki Repps sál., eg lét flytja kassann í gær —
hann fékkst ei fyrr í land — inn í hús mitt hvar ættingjar Repps og vinir voru
við meðan kassinn var opnaður, og líka eftir ósk náunganna líkkistan opnuð;
síðan aftur slegin til og borin héðan út í kirkju eftir að eg hafði talað fáein orð
yfir henni, þar stendur hún til næsta þriðjudags þá líkið verður greftrað, ef guð
lofar. Vegna asans með póstskipið og innfallandi helgidaga varð þessu ei meira
flýtt, bið eg þig gjöra svo vel að láta ekkjuna vita hvar þessu er komið. —
Hvað kostnaðinn snerti hafði eg ætíð ímyndað mér, að eg annaðist hann
hér á landi, en að ekkjan eður vinir hennar ytra mundu borga flutninginn hing-
að inn, en af innlögðum reikningi frá Tærgesen sér þú að eg hefi borgað 30 rd.
fyrir hingaðflutninginn, og áleit ei sæmilegt að gjöra þras úr þessu, þó borg-
unin sé meiri en fyrir heilt lestarrúm. Þó mér þætti kynlegt að það ei hefði
verið afgjört við Kock sjálfan áður en skipið fór, en hér var gengið ríkt eftir
borguninni af Aanensen.
Þessa 30 rd. óska eg mér endurgoldna og að þú gjörir mér svo vel að borga
þá sem fyrst þú getur vínhandlara Carl Heins á Frederiksborggade Nr. 140
(móti hans kvittan) upp í rúma 46 rd. sem hann er að krefja mig um í ákafa. —
Um þann kostnað sem hér þarf við að hafa, og venjan við heldri manna
jarðarför gjörir ei svo lítinn, tala eg ekki eitt orð — próf. sra Ó[lafur] Pálss[on]
hefur búið til grafskrift, sem eg er búinn að láta prenta og annar hvor okkar
sendir þér exemplar af. —
Póstsk[ipið] á að fara á morgun og allt er í því fumi að eg get ei párað þér
meira. –
Við kona mín heilsum af hjarta þér og þínum —
þinn ævinlega hjartanl. elsk. vin
Helgi G. Thordersen
Skýringar. Þorleifur Repp lést 4. desember 1857. Hann hafði mælt svo fyrir að hann
yrði jarðaður á Íslandi. Þar sem skipaferðir lágu niðri yfir háveturinn varð að bíða
næsta vors að flytja líkið heim með póstskipinu. Því var kistan geymd í Brimar-
199