Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1982, Side 106
102
MÚLAÞING
Eins og áður er getið var hús þetta notað til bóklegrar kennslu allt til
1965, en einnig hefur samkomusalurinn, auk þess að þar fór fram leik-
fímikennsla frá upphafi, einkum hin síðari ár verið notaður í sama
markmiði. Astæðurnar fyrir því eru m. a. eftirfarandi: „Ætlast var til,
að leikfimikennsla færi fram á ganginum (þ. e. í núverandi skólahús-
næði), en fljótt kom í ljós, að salurinn í gamla Samkomuhúsinu reyndist
nýju aðstöðunni fremri á margan hátt og er hann enn í notkun.“ (Grunn-
skóli Stöðvarfjarðar og Grunnskólar í Austurlandsumdæmi, 32).
Auk þessa hefur salurinn ásamt leiksviðinu verið notaður fyrir árshá-
tíðir Grunnskólans annað veifið og ýmsar aðrar samkomur á vegum
skólans eða kennslu, t. d. söngskemmtanir, danskennsla skólabarna
o. fl. Um það leyti, sem þetta húsnæði er tekið í notkun var flutt í
skólastofuna aðstaða bókasafns Stöðvarhrepps („Lestrarfélags Sthr.“).
Var það þar til húsa jafnlengi og skóli var staðsettur. Voru bækurnar
geymdar í lokuðum skápum í skólastofunni. Safnið var opið einu sinni á
viku, a. m. k. á meðan ég var að alast hér upp, og mikið notað. Var það
svo flutt í kjallarann undir leiksviðinu í mun þrengra og verra húsnæði,
síðan í eina skólastofu nýja skólans og nú er það staðsett í rúmgóðu
herbergi á sama stað og skrifstofur Stöðvarhrepps eru til húsa — í
kjallara Samvinnubankaútibúsins.
III B.
Kennslan í eldri skólanum
Eins og vikið er að hér að framan varð breyting á örum skiptum á
kennurum um það leyti, sem aðstaðan var flutt í eldri skólann. Þá hafði
Runólfur Einarsson fengizt við kennslu í nokkur ár og varð hann fyrsti
kennari í nýja húsinu (og um leið fyrsti ,,fastakennari“ í skólahverfinu).
Árið eftir var kennarastaðan auglýst við stofnunina. „4 umsóknir lágu
fyrir, frá þeim Runólfi Einarssyni, Arnlaugu Kristjánsdóttur, Jónatan
Jakobssyni og Magnúsi Þórarinssyni. En vegna þess að enginn umsækj-
enda sannaði fjölhæfni sína sem kennara, þá lítur skólanefndin svo á,
að réttast sé, að fá aðeins settan kennara til 1 árs, og afgreiddi hún
málið þannig til fræðslumálastjóra." (Gerðabók skólanefndar). 15. októ-
ber 1938 hittist skólanefndin svo „til að ákveða reglugerð Barnaskóla
Stöðvarskólahverfis. Var reglugerðin undirskrifuð og send til Fræðslu-
málaskrifstofu.“ (Gerðabók skólanefndar). Ekki virðist skortur á
kennslubókum vera ný bóla, því að í sömu fundargerð getur að líta:
„Ennfremur var rætt um kvartanir er skólanefnd hafa borist vegna