Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1982, Side 141

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1982, Side 141
MULAÞING 137 Nú er að segja frá Jörgen á Skjóna. Af einhverri tilviljun (ef það var tilviljun?) er hann staddur það nærri er Þórarinn neyddist til að sleppa föður mínum, að hann nær að grípa í peysukraga hans og draga hann að sér. Nú sneri hesturinn þannig að beinast lá fyrir að halda áfram norður yfir ána, um 80 m sund, og þar enginn til að taka á móti hröktum mönnunum nema unglingur sem passaði féð fyrir norðan. Og ekki gat Jörgen hætt á að snúa hestinum með beislinu, því þá var líklegt að hann keyrði hann í kaf. En hver sem skýringin er — þá sneri blessuð skepn- an við sjálfviljug til sama lands aftur þar sem allir biðu eftir að taka á móti föður mínum nær rænulausum. — Allt frá þessari stundu hefur sú spurning leitað fast á huga minn — hver sneri hestinum við til sama lands aftur? Nú vildi svo til að hjá okkur var staddur gamall maður er Benedikt hét Isaksson og hann átti alltaf vín þó aldrei neytti þess sjálfur. Hafði gaman af að gefa vinum sínum. Nú dreif hann vín í pabba, og svo var honum hjálpað heim og háttaður ofan í rúm sem velgt hafði verið með flöskum með heitu vatni. Hitapokar þekktust þá ekki. Helst er ég á að heitar flöskur hafi mörgu mannslífinu bjargað á umliðnum kuldaárum og öldum. Af Þórarni er það að segja, að eftir að hafa hvílt sig stutta stund og farið í þurr föt, hélt hann áfram að vinna eins og ekkert hefði gerst. Þegar þetta hafði nú fengið þennan farsæla endi létti yfir fólkinu. Var nú farið að hugsa um hvernig mætti ná ferjunni, því sumt af fénu var komið norður yfir og ekki voru þar öll lömb með réttum mæðrum. Einnig höfðu nokkrar kindur úr sokknu ferjunni flotið upp á stóra eyri í ánni austur af Hrísnesinu, ysta og austasta tanganum á Valþjófsstaða- nesinu við ána, en í þá eyri lentu oft lömb sem reyndu að synda austur yfir. Það varð því að gæta þeirra vel fyrir norðan, því ef þau heyrðu í mæðrum sínum austan ár sóttu þau í ána. Hins vegar var ómögulegt að láta allt fara rétt í ferjuna. Eins voru til forustukindur sem gæta varð mjög vel þegar rekið var í réttina. Sóttu þá í ána. Eg átti lengi mórauðan forustusauð sem aldrei fór í ferjunni þrátt fyrir háan aldur. Síðasta árið sem hann lifði lét ég sitja um að grípa hann um leið og hann rann í réttina. Var hann settur fyrstur í ferjuna, en hann gerði sér þá lítið fyrir, hljóp fram í stafn, stökk yfir grindverkið á borðstokki og steypti sér til sunds í ána. Hann gat stokkið allt að axlarhæð meðalmanns og það á móti brekku. En nú var ekki annað ráð fyrir hendi en að sækja róðrarferjuna í Hrafnkelsstaði, en þar var lögferja á ánum. Hún var mikið stærri, breið-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.