Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1982, Qupperneq 205
MULAÞING
201
Einar Rólantsson eða Rollantsson eins og það er ritað í manntalinu.
Bóndi með þessu nafni býr á Glúmsstöðum 1801 32ja ára, þar er þá
tvíbýli. Kona Einars er Halldóra Olafsdóttir 54 ára. Eftir aldursmunin-
um mætti ætla að þessi ungi maður hefði náð sér í stönduga ekkju, en
svo virðist ekki vera. Samkvæmt manntalinu er þetta fyrsta hjónaband
þeirra beggja, hvað sem síðar kann að hafa orðið. Þar verður þröngt um
vik að svara. Hvorugt þessara hjóna finnst í Ætturn Austfirðinga undir
númeri. Ég fór því að leita að föðurnafni bónda því Rollant, en þannig
er það ritað í Ættunum, er ekki algengt nafn. Þarna finnast fjórir menn
með þessu nafni, þar af þrír náfrændur, sjá afkomendur Margrétar
Magnúsdóttur (8005) og Jóns Magnússonar er bjuggu á Hámundarstöð-
um í Vopnafirði á fyrri hluta og um miðbik 18. aldar; „eru bæði á lífi
1757“ segir séra Einar Jónsson. Hið undarlega er að enginn þessara
fjögurra RoUanta getur barn svo vitað sé.
Hér er ekki stórt heimili. Auk hjónanna er þarna móðir bónda, Hall-
dóra Guðmundsdóttir, 73ja ára ekkja, sem ekki heldur sést í Ættum
Austfirðinga svo og Jens Evertsson 15 ára, talinn vinnumaður. í Ætt-
unum er aðeins nefndur einn Evert og er það Evert Wíum (9992), sá er
Sigfús Sigfússon nefnir hinn sterka, sonur Hans sýslumanns. Evert var
kvæntur Margréti Halldórsdóttur prests á Desjarmýri Gíslasonar. Son-
ur þeirra var Jens, að líkum hinn sami og hér er skráður vinnumaður.
Eiríkur Eiríksson (2463) 26 ára, býr á Egilsstöðum í tvíbýli við Þor-
stein Jónsson sem áður er nefndur. Þeir eru mágar. Kona Eiríks Mar-
grét Jónsdóttir (1671) er systir Þorsteins og er hún 35 ára. í heimilinu
eru alls fimm manns, börn þeirra hjóna tvö, Páll 5 ára og Gróa 2ja ára
svo og móðir Eiríks Vilborg Pálsdóttir (2462), ekkja 57 ára. Faðir Eiríks
bónda var Eiríkur Runólfsson í Kleif og víðar og var Vilborg síðari kona
hans. Hann hafði áður verið kvæntur Solveigu Jónsdóttur (2053) föður-
systur Margrétar húsfreyju.
Þau Eiríkur og Margrét bjuggu víða í Fljótsdal, síðast á Víðivöllum
ytri og var Eiríkur hreppstjóri. Frá þeim segir glöggt í Ættum Austfirð-
inga. Þau eignuðust ellefu börn, þar af fimm drengi sem allir dóu ungir.
Varð Páll, sem hér er talinn, þeirra elstur og náði þó aðeins 8 ára aldri.
Yngsta barn þeirra hjóna, Járngerður fædd 20. febrúar 1812, var móðir
sr. Einars prófasts hins ættfróða.
Jón Eiríksson. Þetta er ugglaust Jón eldri Eiríksson (12682) á Hrafn-
kelsstöðum sonur Eiríks Bárðarsonar (12681) bónda s. st. Manntalið
segir hann 28 ára gamlan og er það samhljóða öðrum heimildum. Kona
hans er Guðbjörg Magnúsdóttir 32ja ára. Þegar hér er komið sögu eiga