Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Blaðsíða 27
Sterlingsstrandið
heildarverð og átti það Eyjólfur Jónsson,
bankastjóri útibús Islandsbanka á Seyðisfirði.
Lægsta boðið, á þessu uppboði, átti Benedikt
Jónasson, verslunarstjóri fyrir Sameinuðu
íslensku verslanimar á Vestdalseyri, 1 krónu
og 5 aura, með 5% innheimtugjaldi.
Nokkrir utanbæjarmenn sóttu uppboð
þessi, bæði af Héraði, Norðfírði og Borgar-
fírði eystri, Loðmundarfirði, Bakkafírði.
Hæsta boð þessara utanbæjarmanna átti
Þorvaldur Hjarðar frá Hjarðarhaga á Jökuldal
en það var með innheimtugjaldi að upphæð
691 krónur og 43 aurar.
Ekki hef ég séð getið kaupanda frá
Mjóafírði en þó má vel vera að þeir
kaupendur sem ekki fylgir heimilisfang hafí
einhverjir þeirra verið frá Mjóafírði en þar
var síðasti viðkomustaður Sterlings áður en
hann strandaði.
Greinargerð lögreglustjóra um bókun
Laugardaginn 27. maí tók lögreglustjóri
fyrir: „Síðan bókað var síðast viðvíkjandi
strandinu hefúr þetta gerst:
Uppboð haldið 22. þ.m. á ýmsu strand-
góssi er lá við skemmdum.
Sunnudaginn 21. þ.m. kom sú ffegn af
strandstaðnum að Sterling væri sokkinn eða
horfinn og reyndist það rétt. Hefur skipið
liðast í sundur á skerinu vegna brims og
óveðurs. Þann dag var versta veður, ofsa
hvassviðri og brim. Seinnipart dagsins fór að
reka viður og ýmislegt úr Sterling alla leið frá
strandstaðnum og inn með Seyðisfirði beggja
megin. Einnig rak nokkuð næstu daga. Var
öllu sem rak að landi bjargað beggja megin
ljarðarins. Hafði hreppstjóri Seyðisijarð-
arhrepps, Sigurður Jónsson, umsjón með
þeirri björgun eftir fýrirskipun lögreglustjóra.
Var því næst ákveðið og auglýst uppboð á
þessum reka úr Sterling og skal það haldið 2.
næsta mánaðar.”
Laugardaginn 10. júní tók lögreglustjóri
fyrir: „Síðan bókað var síðast og 3. upp-
boðið var haldið á viðarreka o.fl. úr skipinu
Sterling, þar eð viðarrekinn sem rak úr
Sterling var svo lítilfjörlegur að augsýnilegt
var að það var ekki nema nokkur partur úr
skipinu, áleit lögreglustjóri rétt að athuga á
strandstaðnum þegar veður leyfði hvort
ekkert væri eftir af skipsflakinu á skerinu eða
við það, þótt það væri hulið sjó, ef vera kynni
að mögulegt væri að bjarga einhverju þaðan.
Fór því lögreglustjóri á mótorbát á strand-
staðinn þriðjudaginn 6. júní, í besta veðri og
logni, til athugunar. Sást þá á mararbotni,
landmegin við skerið sem Sterling strandaði
á, stór hluti af skipsflakinu, virtist vera önnur
hliðin og gufuketillinn, en óhugsanleg var
nokkur björgun nema með aðstoð kafara,
sem ekki var til hér um slóðir.”
Þriðjudaginn 27. júní tók lögreglustjóri
fyrir: „Síðan bókað var síðast: Uppboð í gær
á einum kassa með ýmsu strandgóssi í úr
Sterling. Umboðsmaður frá vátryggingar-
félaginu tilkynnti að hann vildi ekki, að svo
stöddu setja á uppboð ýmislegt af strand-
góssi úr sjálfu skipinu Sterling, svo sem
inventer [innbú - S.M.], borðbúnað o.fl. Var
því frestað uppboði á strandgóssi þessu fýrst
um sinn.”
Mánudaginn 18. september tók lög-
reglustjóri fyrir: „Samkvæmt síðustu bókun
var frestað uppboði á ýmsu standgóssi úr
Sterling samkvæmt ósk umboðsmanns
vátryggingarfélagsins Trolle og Rothe, allt
þar til í lok ágúst að ósk kom frá sama
umboðsmanni um að láta halda uppboð á
góssinu“. Var uppboðið auglýst í blaðinu
Austanfara sem út kom á Seyðisfirði, 9.
september 1922 og þar auglýstir sölu-
skilmálar við uppboð á strandgóssi úr e/s
Sterling, og þar að auki símað á allar
símstöðvar í Norður- og Suður-Múlasýslum.
Uppboðið fór fram 15. og 16. september
25