Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Side 65
Mannanöfn í stöðfirskum örnefnum
tína grösin í Jafnadal (við Einbúa og í
Stöðvarskarðsbrekkum).
23. Gunnarstindur og -skarð
Eftirfarandi er haft eftir Jóni Bjömssyni,
frá Kirkjubóli, í erindi inni á Grænabala,
trúlega árið 1931, þar sem hann rakti
þjóðsögu um nafngift Gunnarsskarðs (Anna
Þorsteinsdóttir og Magnús Þórðarson).
Gunnar var smali á Arnastöðum í
Breiðdal og var hann í tygjum við stúlku í
Hvalnesseli (innan við Stöð, syðra megin
ár). Hún spann band yfir skarðið og þegar
hún vildi finna Gunnar þá kippti hún í það
og kom hann þá að finna hana.
Af því dregur skarðið nafn sitt. Þau
giftust og varð það því fyrsta „hjóna-
bandið.”
Grænibali er innan við Stöð og þar héldu
Stöðfirðingar gjaman skemmtanir á sumrin,
t.d. á fyrstu ámm ungmennafélagsins sem
var stofnað 1928.
Þetta er aðeins ein ágiskun um það
hvemig nafnið er tilkomið. í riti Sigfúsar
Sigfússonar, lslenskar þjóðsögur og -sagnir
stendur:
„Gunnar eða Gunnarstindur heitir fagur
hnjúkur á fjallinu milli Breiðdals og
Stöðvarfjarðar. Á Stöðvarfirði lá Mærinnar-
helgi.“
Álítur Sigfús að nafn fjallsins tengist
goðhelgi sem e.t.v. má þá rekja til landnáms
Stöðvarljarðar á landnámsöld en land-
námsmaðurinn var Þórhaddur.
Mannsnafnið Gunnar er skilgreint svo:
Bardagamaður. - Hefur verið mjög
algengt hérlendis frá upphafi. (Hermann
Pálsson, 1960, bls. 89).
Verið gæti að einn af mönnum Þórhadds,
Gunnar að nafni, hafi verið heygður við
tindinn eða tekið þátt í trúarathöfnum þar. I
ritinu Islenskar þjóðsögur og -sagnir kemur
víða fram að ásatrúarmenn hafi iðkað slíkar
athafnir uppi í Ijöllum eða við þau og bera
mörg fjöll á Islandi t.d. nafnið Goðaborg.
Sé tilgáta Sigfusar Sigfússonar rétt, er
nafnið Gunnarstindur næstum jafngamalt
byggð í Stöðvarfirði, þ.e. um 1000 ára
gamalt.
24. Daníelshylur
Daníelshylur er við Oseyrartún, utan við
Silungahyl. Var þar góður veiðistaður áður
fyrr.
Fram komu hugmyndir um að hylurinn
heiti eftir Daníel Sigurðssyni sem árið 1912
var skráður húsmaður á Hól, þá 49 ára að
aldri (sjá Hreppsbók Stöðvarhrepps um
menn með kosningarétt).
Á árunum 1920-1930 bjó hann í Flauta-
gerði en einnig var hann vinnumaður í Stöð.
Aðrir telja nafn hylsins mun eldra og þykir
mér það líklegra.
25. Carlsklettur
Carlsklettur er beint neðan við
Hvalnesbæinn á suðurströnd Stöðvarfjarðar,
30 - 50 metrum ofan við sjávarbakka. Á
hann var breitt hvítt lak þegar sækja átti Carl
kaupmann, eða einhvem á hans vegum, yfir
fjörðinn, þ.e. frá Hvalnesi og yfir í þorp.
Einnig var breitt á aðra kletta, t.d. Hagaklett,
en hann er innan við Hvalnesbæinn.
Carlsklettur og e.t.v. Hagaklettur voru
notaðir í sama tilgangi eftir að Carl dó, allt
fram undir 1940 - 1950.
26. Bessavogur
Bessavogur er innan við Borgames og
utan við Leiti, þ.e. utan við Hvalnes. Talið
er af sumum að maður að nafni Bessi hafi
reynt að stökkva þar yfir, en drukknað. Sú
tilgáta kom fram að það hafi verið Bessi
Sighvatsson, þá búsettur í Breiðdal, en það
mun ekki standast. Einnig hef ég heyrt að
63