Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Page 110
Múlaþing
Lárus Sigurjónsson eins og hann birtist lesendum
bókarinnar Aldrei gleymist Austurland.
setur hann ártal við nær 80. Athygli hlýtur
að vekja að ekki eitt einasta þeirra er ársett
á tímabilinu 1907-1915, aðeins eitt 1916,
og megi dæma eftir ártölunum tekur hann
ekki að yrkja á nýjan leik að marki fyrr en
1920.
Það er allrar athygli vert að Lárus hefur
ljóðagerð á ný, að því er best verður greint,
í þann mund er hann gengur í hjónaband, er
síðar verður vikið að. Af dæmum þessum
verður dregin sú ályktun að ástin hafí verið
Lárusi Sigurjónssyni mikill aflgjafi til
ljóðagerðar.
Yngri ljóð Lárusar bera annan svip en
hin eldri. Hann hefur þróað með sér nýjan
stíl. Hin létta kveðandi er horfín, djúp al-
vara ríkir öllu ofar. Stundum minnir hann á
berserk, er ræðst til atlögu við bergstál að
kaldhamra myndsmíð, ellegar garðlags-
mann, sem lítur ekki við smágrýtinu heldur
fellir saman lítt meðfærileg björg í
hleðsluna. En að verki loknu stendur smíðin
gneip og tigin en ekki ávallt árennileg. En
hvernig sem hann velur sér hætti og
kveðandi fölskvast aldrei ást hans á Islandi,
íslenskri menningu, íslenskri tungu.
Lárus Sigurjónsson dvaldist áratugum
saman í Vesturheimi, íyrst í Kanada en síðar
í Bandaríkjunum og vann framan af við
almenn störf að því er heimildir greina.
Arið 1920 gekk hann í hjónaband, kvæntist
bandarískri söngkonu, Mabel N. Eyers,
dóttur Howard's Eyers prófessors í
Cincinnati í Ohio, og ráku þau söngskóla í
Chicago með stórum hópi starfsmanna frá
1924-1939, en sjálfur nam Lárus framburð
og raddbeitingu við tónlistarskóla þar í borg
á árunum 1926-1928.
Lárus kom heim til Islands árið 1943 og
dvaldist hér um hríð, en kona hans var þá
bundin við störf í Bandaríkjunum. Ljóða-
bók hans, Stefjamál, kom út í Reykjavík
1946. Hann hvarf aftur vestur um haf, en þó
ekki til langrar dvalar og laust eftir 1950
fluttust þau hjón til Islands, alkomin og
dvöldust í Reykjavík til dauðadags. Lárus
andaðist 9. mars 1967, á nítugasta og þriðja
aldursári en kona hans lést 18. júní 1987,
skömrnu eftir 100 ára afmæli sitt og ber í
íslenskum skrám nafnið Mabel Theódóra
Hávarðardóttir.
Þegar Lárus var hartnær níræður kom út
eftir hann önnur ljóðabók, Eimunamál,
undirtitill Alþingi Islendinga. Bókin er
helguð 1000 ára afmæli Alþingis. Megin-
efni hennar er hátíðarljóð, söngleikur í
þremur þáttum og ber nafnið „Alþingi 930-
1930”. Auk þess eru í bókinni þrjú kvæði
og höfðu tvö þeirra áður birst í Stefjamálum.
108