Sagnir - 01.06.2016, Page 242
sannleiksnefnd skipaðri af Alþingi sem starfaði fyrir opnum tjöldum, svo sem í
beinni útsendingu í fjölmiðlum.55 Það gerði einnig Björgólfur Thor Björgólfsson
sem að loknum skýrslutökum og málflutningi sagði helsta lærdóminn af landsdómi
vera þann að uppgjörið við hrunið væri að mistakast.56 Valur Ingimundarson hefur
réttilega bent á að vandinn við tillöguna frá þessum mönnum sé sá að þeir sem
kynnu að hafa brodð af sér slyppu við refsimál ef farin væri leið sátta- og sannleika
þar sem uppgjörið færi fram með því að menn játuðu ábyrgð sína án þess að axla
hanad7
Þar sem Alþingi hefur enn ekki skipað rannsóknarnefnd um einkavæðingu
bankanna vegna kostnaðar við fyrri rannsóknarnefndir58 er ef til vill ekki ástæða
til að æda að Alþingi væri líklegt til að setja sannleiks- og sáttanefnd á fót úr þessu.
Auk þess hefur enginn þingmaður viðrað þá hugmynd úr ræðustóli Alþingis síðan
Guðfríður Lilja Grétarsdótdr, þáverandi þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs gerði það 20. janúar 2012.59
Við þær aðstæður má velta fyrir sér hvort réttarhöldin yfir Geir H. Haarde í
landsdómi hefðu að einhverju leyti getað komið í stað sannleiks- og sáttanefndar.
Hefðu skýrslutökur getað leitt til þess að fram kæmu þær upplýsingar eða
yfirlýsingar sem kynnu að leiða til sátta eða hjálpa til við uppgjör? Eins og farið
hefur verið yfir hér að ofan steig enginn fram í skýrslugjöf í landsdómi og lýsti
ábyrgð á hendur sér, nema að mjög takmörkuðu leyti. Forsvarsmenn hinna föllnu
bankanna einbh'ndu á það sem þeir hefðu gert vel eða reynt að gera en ekki gengið
eftir, annað hvort vegna heimskreppu eða aðgerða annarra. Stjórnmálamenn lýstu
tvennum aðstæðum, annars vegar þeim að hafa tahð stöðuna betri en hún var og
þá ekki síst vegna skrifa Seðlabankans, hins vegar að ekkert hefði verið hægt að
gera á þessum tíma. Að því leyti er vitnin sáu sök eða ábyrgð var hana að finna
hjá öðrum. Því er eklti að sjá að tækifærið til að nota landsdóm sem sannleiks- og
sáttanefnd hafi verið nýtt, hafi það verið til staðar. Valur Ingimundarson hefur
þvert á móti sagt að skýrslugjafir vitna hafi fyrst og fremst verið sjálfsvörn ek'tunnar
í viðskiptum og stjórnmálum.60 Hjalti Hugason guðfræðingur sem skrifaði uffl
uppgjör við hrunið frá sjónarhóh iðrunarguðfræðinnar og iðrunar- og skriftaferk
kirkjunnar sagði að líklega hefði þjóðin misst tækifærið til að fara í gegnum
félagssálfræðilegt endurbyggingar- og sáttaferh þegar meirihluti Alþingis ákvað að
55 Vef. Jón Ásgeir svarar á beinni línu, dv.is, 14. febrúar 2012,
http://dv.is/beinlina/jon-asgeir/. Sótt 30. nóvember 2014.
56 Vef. Björgólfur Thor Björgólfsson, „Landsdómur - lærdómur“,
http://www.btb.is/safnid/frettir/nr/525. Sótt 30. nóvember 2014.
57 Valur Ingimundarson, „The Polidcs of Justice“, bls. 10-11.
58 Vef. „RNA um einkavæðingu ekki skipuð strax“, frétt á rúv.is, 14. apríl 2014,
http://www.ruv.is/frett/rna-um-einkavaedingu-ekki-skipud-strax. Sótt 28. mars 2015.
59 Vef. Guðfríður Lilja Grétarsdótdr, þingræða 20. janúar 2012,
http://althingi.is/altext/raeda/140/rad20120120T204242.html. Sótt 28. mars 2015.
60 Valur Ingimundarson, „The Polidcs of Jusdce“, bls. 8.
242