Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 11

Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 11
ÆVIMINNINGAR 11 Kristínu. Faðir minn fór til Reykjavíkur og keypti þar efni í nýtt timburhús, og það varð fokhelt fyrir jól. Þetta hús stendur enn (1977) og hefur verið búið í því fram á þennan dag. Í húsinu eru þrjár stofur á neðri hæð. Ein stofan var kölluð ömmustofa, en þar var rúm Bjargar ömmu minnar, sem fluttist í Fell um þetta leyti og bjó þar síðan til dauðadags. Annað rúm var í ömmustofu, en þar sváfum við Björg systir mín saman. Síðan var stofa föður míns, sem einnig var borðstofa, enda mjög gestkvæmt í Felli. Þar var skrifborð, þar sem hann geymdi öll sín gögn, en hann var hreppstjóri í 36 ár og sýslunefndarmaður og oddviti á tímabili. Fljótlega kom þar einnig símstöð og póstafgreiðsla. Þriðja stofan var kölluð stássstofa. Þar voru rauðar plussmublur, hár skápur með skúffum og stór spegill með litlu borði undir. Þennan spegil á ég enn. Þessi stofa var notuð þegar heldri menn komu í heimsókn, sýslumaður að þinga og aðrir embættismenn. Þar voru geymdir vindlar og vín, sem veitt var við þessar gestakomur. Eldhús og búr voru einnig á hæðinni. Eldað var á eldavél, sem brenndi mó og timbri. Ofnar voru í ömmustofu og pabbastofu, sem einnig brenndu mó og timbri, en enginn í stássstofunni. Þar var brjóstbirtan látin duga. Úr eldhúsinu var gengið upp á loft, en þar var kvistherbergi, sem var hjónaherbergi, og þrjú svefnherbergi, þ.e. piltaherbergi, en þar svaf Sveinn bróðir minn og vinnumenn, stúlknaherbergi, þar sem vinnukonurnar sváfu, og gesta- herbergi. Einnig var þar geymsla, sem kölluð var dimmakompa, og önnur geymsla. Kjallari steinsteyptur var undir húsinu. Þar var geymd mjólk, súrmatur og önnur matvæli, einnig eldiviður. Seinna var byggður skúr við húsið fyrir reiðtygi og amboð. Á heimilinu voru venjulega þrír vinnumenn og þrjár vinnukonur og verkefni skorti ekki. Pabbi var mikill og heppinn sjósóknari, og var alltaf róið þegar gæftir voru. Hann var líka mikill smiður bæði á tré og járn, enda smíðaði hann skip sín og báta að mestu leyti sjálfur. Minnisstæðast þessara skipa er mér áttæringur, sem hét Farsæll, líklega um 10 tonna skip. Rúff eða skýli var fram í skipinu og eldavél þar í, svo sjómenn gátu borðað þar inni við hlýju frá vélinni. Aftur í var svo annað rúff, en minna og aðeins notað til geymslu veiðarfæra o.fl. Lifrarkassi var miðskips. Róið var báðum megin með stórum árum þegar logn var, en yfirleitt voru notuð segl. Var þá slagað eða „krusað“ eins og sagt var, þar til heimahöfn eða áfangastaður náðist. Farsæll var gerður út frá Árósmöl.1 Farsæll var mikið happaskip, en það átti fyrir honum að liggja, eins og öðrum, að eldast. Pabbi seldi hann þá Poppsverslun á Sauðárkróki og átti að nota hann til uppskipunar á vörum. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Farsæli var lagt á Sauðárkrókshöfn, en stuttu síðar kom sunnan rok og sleit hann upp. Hann rak út Skagafjörð þar til hann kom á Árósmöl. Þar brotnaði hann í spón. Hann var kominn heim. Þeir sem voru með pabba á sjó, sögðu að allt léki í höndum hans, þegar veður voru vond, og þá sérstaklega stjórn undir seglum. Skipin voru þá eins og 1 Árósmöl er við ós Hrolleifsdalsár, sem afmarkar land Fells að sunnan.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Skagfirðingabók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.