Skagfirðingabók - 01.01.2014, Síða 25

Skagfirðingabók - 01.01.2014, Síða 25
ÆVIMINNINGAR 25 fengið neina veiki heima nema mislinga. Frú Anna sótti lækni og Jón kom til mín á hverjum degi og sótti meðul handa mér, en ég lá heima. Þetta tafði mig dálítið frá náminu og þurfti ég að leggja harðara að mér á eftir til að ná hinum. Magnús Helgason, skólastjóri, var alveg sérstakur ágætismaður og skildi vel að fjarvist mín var af veikindum, en ekki skrópi, enda talaði frú Anna um þetta við hann. Auk skólastjóra voru kennarar í skólanum þennan vetur Ólafur Dan Daníelsson, Sigurður Guðmundsson og Jónas Jónsson frá Hriflu. Minnisstæðastur af þessum kennurum er mér Jónas frá Hriflu. Ég minnist þess ekki, að hann tæki okkur upp til að vita um kunnáttu okkar, en talaði sjálfur mestallan tímann um menn og málefni. Sérstaklega talaði hann miður vel um Kvennaskólann og fröken Ingibjörgu H. Bjarnason. Hann átti að kenna náttúrufræði, en það eina sem hann kenndi okkur í því sambandi, var að stoppa upp önd, sem mér fannst þarflaust og að engu gagni. Það var lítið um skemmtanir í skólanum, bara skólaskemmtun um miðjan vetur. Ég bauð Jóni þangað. Björg, amma mín í Felli, bað mig að koma til systur sinnar, Margrétar Jóns- dóttur, móður Jóns Þorlákssonar, sem þá var landsverkfræðingur. Kona Jóns, Ingibjörg Claessen, tók mér mjög vel og fór með mig til Margrétar, sem hafði mjög fínt herbergi hjá þeim hjónum. Hún hafði gaman af að frétta af systur sinni. Þær höfðu ekki haft neitt samband síðan þær voru heimasætur á Undirfelli, en Björg amma mín fluttist ung með systur sinni Katrínu, sem giftist séra Jóni Norðmann á Barði í Fljótum og var hjá þeim, þangað til hún giftist Sæmundi afa mínum. Frú Ingibjörg var ákaflega notaleg við tengdamóður sína. Hún bað mig að koma aftur og tala við hana. Svo sagði hún, að það væri vani hjá þeim hjónum að bjóða skyldfólki Jóns í mat um jólin. Þangað fór ég. Frú Ingibjörg var há, grönn og glæsileg og góðleg. Jón var lágur vexti, þybbinn og festulegur á svip, en fremur þurrlegur. Þau hjón áttu engin börn, en tóku tvær fósturdætur seinna. Ég var ekki sérlega ánægð í Kennara- skólanum og fannst allt betra, sem Kvenna- skólastúlkurnar voru að læra. Ég var nú líka farin að efast um, að kennsla yrði mitt ævistarf. Í Kvennaskólanum var öll kennsla miðuð við að stúlkurnar yrðu færar sem húsmæður. Þar var kennsla í meðferð ungbarna, fínn léreftssaumur og falleg handavinna. Mér fór nú að detta í hug að fara í Kvennaskólann næsta vetur. Ég mátti ekki láta þessa hugdettu mína uppi við neinn. Það hefði verið talinn argasti hringlandaháttur. Ég var mjög frjáls í fasi og lífsglöð á þessum árum, hugurinn beindist ekki að neinum sérstökum manni, aftur á móti fór nú að bera á því að Jón gætti mín meira en áður og fór hann nú að fá glósur um það við borðið. Hann skrifaði í póesíbók mína þessa stöku: Óskirnar læt ég ekki hér, því enginn má þær heyra. Ég segi þær allar einni þér, en ekki hérna meira. Þessar óskir hans fékk ég síðar að heyra, áður en ég fór heim um vorið. Ég hélt áfram að umgangast hann sem góðan vin, en ekkert fram yfir það. Hann var góður ráðgjafi og sérstaklega hlýr, sem ég kunni að meta eftir strangt uppeldi hjá föður mínum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200

x

Skagfirðingabók

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.