Skagfirðingabók - 01.01.2014, Side 30

Skagfirðingabók - 01.01.2014, Side 30
SKAGFIRÐINGABÓK 30 Mývatnssveit. Bróðir Jóns var valinn til að sækja okkur á hestum. Hann var mjög forvitnislegur þegar hann athugaði mig og sagði síðan við bróður sinn: „Ekki hefur þú gengist fyrir fríðleikanum bróðir.“ Jón rak upp skellihlátur, en pilturinn vildi bæta úr þessu og tuldraði, „Það er kannski eitthvað varið í hana.“ Þetta voru mín fyrstu kynni af tengdafólkinu. Við fengum dásamlegt veður þennan dag og Mývatnssveitin skartaði sínu fegursta, þegar við komum þangað um kvöldið. Jón var ekki alinn upp í Garði, en fósturforeldrar hans voru á Hofsstöðum og þangað fórum við fyrst og vorum þar um nóttina. Fósturforeldrar Jóns hétu Sigurður Guðmundsson og Anna Jóns- dóttir. Þau voru barnlaus, en í sæmi- legum efnum og kostuðu Jón í skóla, það sem efni þeirra hrukku til. Annars hefði hann aldrei átt kost á neinni skólagöngu, því að hjónin í Garði áttu mörg börn. Jón var annar í röðinni, en Þura kom ári seinna. Þess vegna tóku þessi hjón Jón í fóstur. Móðir Jóns var mjög heilsutæp og átti börnin ört. Hún var glæsileg kona, gáfuð, las mikið, en engin búkona. Árni Jónsson, faðir hans, var aftur á móti mjög duglegur bóndi og átti fullt í fangi með að veita konu sinni góða daga, en hann bar hana alltaf á höndum sér. Þegar við komum í Hofsstaði um kvöldið, var þar mikill viðbúnaður að taka á móti okkur. Borð var hlaðið með silungi og eggjum, en þetta var um varptímann og mikil eggjataka þarna. Fóstra Jóns, Anna, var mjög vel verki farin og dugleg og mikil tóskaparkona. Hún fór nú að athuga föt Jóns og þegar hún sá sokka hans sagði hún: „Guð hjálpi þér, Jonni minn, hvernig þú hefur stagað í sokkana þína,“ en þetta hafði ég stoppað af mestu snilld og kunnáttu úr Kvennaskólanum. Þarna fékk ég nú að vita, að ég var ekki mikil, hvorki í sjón né raun. Daginn eftir fórum við í Garð að heilsa upp á foreldra Jóns. Guðbjörg Stefánsdóttir, móðir hans, var ósköp ánægð með menntun hans og talaði um allt, sem að þeim málum laut, en Árni bóndi talaði aftur á móti um búskapinn og silunginn. Þura, systir Jóns, var þá heima og sá um húsverkin fyrir móður sína, sem las og skrifaði og lifði í sínum skáldadraumórum. Þura í Garði var mjög skemmtileg og glaðlynd. Þó að hún væri góður hagyrðingur, var hún líka dugleg til allra verka. Þau systkinin, Jón og hún, voru lík með það. Við vorum tvær vikur, ýmist á Hofs- stöðum eða í Garði. Það var allt mögu- legt gert fyrir okkur til skemmtunar. Við fórum í Slútnes, Dimmuborgir, rerum á vatninu, fórum í hólmana, sem voru fullir af öndum og eggjum. Þetta var sannkölluð Paradís á þessum tíma árs. Allir dagar taka enda, og nú fórum við að hugsa til heimferðar. Það voru engir bílar á þessum tímum og við fórum á hestum til Akureyrar og þaðan á bátum og komum við á Dalvík og Hrísey. Heima í Felli biðu þessi venjulegu sveitastörf. Björg systir mín ætlaði til Reykjavíkur um haustið til að læra ljós- móðurfræði, og hún fékk verustað hjá Jóni og Ásdísi að Laugavegi 20. Þó að við Jón værum nú gift, gátum við ekki búið saman þennan næsta vetur. Hann átti að taka fyrri hluta í læknisfræði um vorið og þurfti að lesa mikið til að ná því, en ég var þá ófrísk og gat ekki haldið áfram að kenna í Haganesvík. Ég var því heima í Felli um veturinn, en hann fór suður um
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Skagfirðingabók

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.