Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 34

Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 34
SKAGFIRÐINGABÓK 34 Læknaskólann. Þegar Sigurður sá, að búskapurinn yrði ekki ævistarf Jóns, seldi hann jörðina til að kosta hann að svo miklu leyti, sem það hrykki. Sigurður fluttist þá að Hofsstöðum í leigujarð- næði, en þangað heimsóttum við þau hjónin í brúðkaupsferð okkar. Björg systir stundaði nú ljósmóðurstörf í Sléttuhlíð. Fyrsta konan sem hún sat yfir, var stjúpa okkar, sem átti sitt þriðja barn í febrúar 1919. Það var ekki sérlega mikið að gera sem ljósmóðir í þessari sveit, en Björg var mjög heppin með sín störf og átti eftir að nota þessa menntun sína vel síðar á ævinni. Við Jón hugsuðum nú til að búa saman í Reykjavík næsta vetur. Við töldum það jafnvel hagstæðara efnalega, en þá voru húsnæðisvandræðin, sem voru alveg sérlega mikil á þessum tímum, eins og jafnan fyrr og síðar. Jón kom heim um vorið að loknu prófi og hafði veika von um húsnæði næsta vetur. Við ætluðum að minnsta kosti að treysta því, að úr rættist, ef þetta brygðist. Við fórum í september, en áður var dóttir okkar skírð í Fellskirkju nafni fóstru Jóns, Anna Jónsdóttir. Þegar suður kom var ekkert húsnæði fáanlegt, því að þetta, sem Jón hafði í huga, var þá búið að leigja öðrum. Þetta voru þau mestu vandræði, sem við höfðum orðið fyrir til þessa. Við vorum til skiptis hjá góðkunningjum, en náttúrulega vildi enginn sitja uppi með heila fjölskyldu vetrarlangt. Mér datt þá ráð í hug. Ég frétti að Jón Þorláksson væri að byggja hús á Baldursgötu. Það voru tvö hús með burstasniði, nokkurskonar stæling á gömlu bæjunum, sem Jón vildi prófa að byggja. Þau voru ekki fullgerð, en ég vildi vita meira um þessi hús og fór að finna Margréti, ömmusystur mína. Ég spurði þá Jón eftir þessum húsum og tjáði honum vandræði okkar. Hann tók þessu mjög vel, en sagði, að það yrði ekki neitt íbúðarhæft í þessum húsum fyrr en í nóvember. Ef við fengjum ekkert þangað til, skyldi hann leigja okkur, en annars ætlaði hann að selja húsin, hann hefði byggt þau til þess. Þetta var langur tími fyrir mig, tveir mánuðir með barn, en þetta bætti þó úr algeru vonleysi. Jón var eins og fyrr á gangi í húsnæðis- leit, þegar hann mætti Þorgrími lækni í Keflavík á förnum vegi og þeir tóku tal saman. Jón sagði honum vandræði sín með mig og barnið. Þorgrímur, sem var hreinasta perla á alla lund, sagði bara: „Ég skal spyrja Jóhönnu mína, hvort hún vilji ekki taka konuna og barnið meðan þið bíðið eftir húsinu hjá Jóni Þorlákssyni.“ Það stóð ekki á svarinu hjá Jóhönnu, að ég væri velkomin þangað með barnið, sem var þá á öðru ári. Jón fór nú með okkur til Keflavíkur, og þvílíkar viðtökur hjá frú Jóhönnu! Þær eru ógleymanlegar og öll vera okkar þar frábær á allan hátt. Jón hélt áfram að lesa í Reykjavík. Hann las á Landsbókasafninu við Hverfisgötu, en Læknaskólinn var þá í Alþingishúsinu og verkleg kennsla á Landakotsspítala. Hann svaf og borðaði hjá Sigurði á Ysta-felli eða á hans vegum þennan tíma. Það var geysilega mikið að gera í náminu seinni hluta læknisfræðinnar. Prófessor Guðmundur Magnússon yfirlæknir á Landakotsspítala var ágætis kennari, en mjög strangur. Læknanemar voru fáir, en þeir voru látnir læra mikið, því að þeir fóru allir út í sveitir sem héraðslæknar að námi loknu. Það var ekki um sérgreinar að ræða. Þeir þurftu því að vera færir í allt, sem mannskepnuna hrjáir, bæði á líkama og sál.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Skagfirðingabók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.