Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 63
63
ANNA DÓRA ANTONSDÓTTIR
AF ÞÓRUNNI JÓNSDÓTTUR
OG HRAFNI BRANDSSYNI
Inngangur
ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR (1612–1693)
Arasonar biskups, hefur jafnan verið
kennd við Grund í Eyjafirði – Þórunn
á Grund. Hins vegar voru tengsl hennar
við Skagafjörð sterk. Á Hólum í Hjaltadal
var miðstöð biskupsfjölskyldunnar og þar
ólst Þórunn upp að hluta til og a.m.k.
tvær giftingar hennar fóru þar fram.
Hólar voru sameiningartákn fjölskyldu
Jóns biskups Arasonar og þar voru gjarna
haldnir fjölskyldufundir þegar mikið stóð
til. Þórunn tengdist einnig Glaumbæ, og
þó einkum Hofi á Höfðaströnd eins og
hér verður sagt frá.
Sextánda öldin var mikil umbrotaöld
á Íslandi og í Evrópu allri. Kom þar
aðallega tvennt til. Annars vegar var
siðbreytingin með aðdraganda sínum
og eftirköstum. Hins vegar var vaxandi
tilhneiging til miðstýringar með styrkingu
konungsvaldsins. Má vera að sterkari
miðstjórn hafi einmitt átt sinn þátt í að
gera siðbreytinguna mögulega. Konur
komu vitanlega að siðbreytingunni og
höfðu áhrif í umbrotunum hér á landi.
Þær voru að sönnu hvorki prestar né
biskupar, en þær komu að kristnihaldi
í klaustrum og siðbreytingin sló
klaustrin hart. Áhrifavaldar hafa einnig
verið þær konur sem stóðu umhverfis
geistlegu stéttirnar, fylgikonur, dætur,
systur og mæður. Um völd og áhrif
miðaldakvenna, allt frá þjóðveldisöld og
fram á síðmiðaldir, hefur ýmislegt verið
rætt og ritað. Sumir fræðimenn álíta þær
hafa verið mun valdameiri en löngum var
talið.
Þórunn Jónsdóttir á Grund í Eyjafirði
var án efa áhrifavaldur í íslensku
samfélagi á sextándu öld, dóttir Jóns
biskups Arasonar og þar með systir
Björns prests og Ara lögmanns. Hún átti
jafnframt þrjá eiginmenn sem allir létu
að sér kveða. Enda er það svo að Þórunn
gægist býsna víða fram í heimildum og
ekki alltaf á forsendum karla. Löngum
hefur legið það orð á að konur séu dætur
einhverra, mæður, systur eða eiginkonur
og komi í heimildum helst fram sem
slíkar. Ugglaust var Þórunn þekktust
fyrir að vera dóttir föður síns. Hún var
vissulega dóttir, systir og eiginkona en
hún var meira en það. Ætla má að hún
hafi verið „áberandi kona“ í íslensku