Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 109
ÉG SAT EINUNGIS EINN HEILAN VETUR Á SKÓLABEKK
109
af bókum sjálfur og einnig lánað það sem
hann gat. Á tímabili batt hann líka inn
bækur og las þær þá um leið. Hann komst
það vel niður í dönsku að hann gat lesið
hana fyrirhafnarlaust. Ég man líka eftir
að hann las danskar bækur og þýddi þá
lauslega um leið. Ég veit ekki hvað hann
hélt þessu lengi áfram, því að ég var farinn
að vera mikið að heiman upp úr 1920. Ég
var t.d. tvo vetrarparta hjá séra Tryggva
Kvaran, sem var þá nýorðinn prestur.
Sigurður Þórðarson kom því í kring og
ég var hjá honum á Nautabúi. Það var
aðallega að kenna mér svolítið í ensku og
dönsku. Það var mín fyrsta undirstaða í því
og gekk bara nokkuð vel, því að ég slapp
með þá kennslu upp í gagnfræðaskólann
a.m.k. Þetta var áreiðanlega veturinn 1919
og svo var ég hjá honum eitthvað veturinn
eftir, ég man ekki hve lengi. Ég man að
fyrra árið var hann ógiftur, en seinna árið
var hann nýgiftur.
Það var einhver bróðir Kristjáns Gísla-
sonar, sem kom frá Ameríku og hafði verið
þar lengi, en sneri aftur gamall maður og
var hjá Kristjáni á Króknum og hafði með
sér helvíti stóran hund. Ég held það hafi
verið einhver Schäffer hundur. Þetta var
tík og hún varð fljótt óvinsæl því að hún
var grimm og réðist á börn og reif í sig
hvaðeina, svo að Kristján vildi losna við
hana og hugkvæmdist að gefa séra Tryggva
tíkina. Hún var þar hlaupandi á túninu og
ég var skíthræddur við helvítis tíkina og
forðaðist hana, þegar ég kom gangandi frá
Nautabúi. Einu sinni réðst tíkin á mig. Ég
var lítill eftir aldri og ekki mikill bógur og
hún beit mig þvert yfir kjálkann og skellti
mér niður. Það vildi mér til að einhver
fjármaður var nærstaddur og bjargaði
mér undan tíkinni, en ég kom heim allilla
haldinn að Mælifelli. Hún hafði bitið
gegnum neðri vörina á mér svo að blæddi
úr. Eftir þetta passaði ég mig að koma
Mælifell um aldamótin 1900. Þannig leit staðurinn út árin sem Jakob var þar í læri hjá séra
Tryggva. Bæjarhúsin og kirkjan brunnu til grunna 21. september 1921.
Ljósm.: Frederick W.W. Howell. Eigandi myndar: HSk.