Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 120
SKAGFIRÐINGABÓK
120
-flutt og Jón fékk peninga til að byggja
þarna upp alvöru stofnun með starfsliði.
Allir þeir sem tóku svo við Árnastofnun
hér í Reykjavík voru lærisveinar Jóns, auk
þeirra sem héldu áfram í Höfn. Útgáfa
stofnunarinnar hefur minnkað mikið
síðan Jón leið. Bæði er að áhugi hefur
minnkað og starfsmönnum einnig fækkað.
En svo eiga þeir að sjá um kennslu, bæði
í norrænu og nútíma íslensku. Stofnunin
var svo klofin í tvennt því annars vegar tók
hún að sér orðabókina fornnorrænu sem
þeir eru nú loksins byrjaðir á að gefa út
og reiknað er með að verði 12 bindi um
fornmálið. Þýðingar orðanna eru bæði á
dönsku og ensku. Nú er þetta sjálfstæð
deild en heyrir undir Árnastofnun í Höfn.
Það eru komin tvö bindi [1997], eitt
bindi af sjálfri orðabókinni en það fyrsta
var inngangsbindi.
Orðabók Háskólans
ÁRIÐ 1946 kom ég til Íslands. Það var
Kristinn E. Andrésson sem stóð fyrir því.
Hann hafði verið í Höfn rétt fyrir stríðið
og sumarið 1939 var ég heima og kynntist
honum þá. Kristinn var þá forstöðumaður
hjá Máli og menningu og var að skrifa
sína bókmenntasögu og vildi þá fá frí í
eitt ár til að ljúka henni. Hann kom til
Hafnar vorið 1945 á vegum einhverrar
sambandsnefndar, var þingmaður. Hann
kom þá að máli við mig og spurði hvort
það gæti komið til greina að ég færi heim
og tæki að mér í eitt ár að stýra Máli og
menningu? Ég var dálítið spenntur fyrir
því að fá tækifæri til að komast heim og
sjá hvað þar væri að gerast, vissi að ég gæti
fengið ársfrí úr mínu starfi í Höfn, svo að
ég sló til og fór heim með það í huga að
vera þarna eitt ár.
En það var tvennt sem gerðist og ég vissi
ekki fyrir. Annars vegar það að Kristinn
fór utan þegar hann var kominn í fríið sitt
en veiktist síðan svo að sýnilegt var að hann
mundi ekki koma aftur fyrr en eftir annað
ár í viðbót. Svo var hitt sem útslagið gerði,
að þá var farið að huga að því að stofna
Orðabókina hér heima. Orðabókarnefnd
var tekin til starfa 1947 og einn maður
hafði starfað á hennar vegum í lausavinnu
við undirbúning allskonar, Árni Kristjáns-
son, síðar menntaskólakennari á Akureyri.
Sumarið 1947 var farið að tala um þetta
við mig. Einar Ólafur Sveinsson, sem ég
þekkti vel frá gamalli tíð, var í nefndinni
og vildi endilega fá mig í starfið. Það gerði
útslagið að ég fór ekki aftur til Danmerkur
og síðan var Orðabók Háskólans formlega
stofnuð 1948. Ég var strax ráðinn for-
stöðumaður og við vorum þrír sem
Fræðimaðurinn Jakob Benediktsson sýnir
hvernig á að handleika pípu.
Eigandi myndar: Grétar Benediktsson.