Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 134
134
HALLDÓR ÁRMANN SIGURÐSSON
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR
Á BJARNASTÖÐUM
LEIÐRÉTTINGAR – OG VIÐAUKI
ÁRIÐ 1996 kom út 24. bindi Skagfirð-
ingabókar með 60 blaðsíðna þætti eftir
undirritaðan um Guðrúnu Ólafsdóttur
ljósmóður á Bjarnastöðum í Unadal. Í
þættinum var m.a. reynt að greiða úr
óvissu og ýmiss konar ruglingi um ættir
Guðrúnar og helsta venslafólk hennar.
Efnið var þvælið og í mikilli bendu, sagna-
ritarar margósamhljóða og heimildir
ýmist fátæklegar eða óaðgengilegar.
Með ötulli hjálp Guðmundar Sigurðar
Jóhannssonar ættfræðings og fleiri góðra
manna tókst þó að greiða úr bendunni að
mestu leyti. Guðrún var fædd um miðja
18. öld, dóttir Þorgerðar Ormsdóttur
og Ólafs Jónssonar bónda og kleinsmiðs
í Kálfárdal í Gönguskörðum og víðar,
síðast á Stóru-Seylu á Langholti. Hún
giftist Jóni Pálssyni bónda nálægt 1775,
bjó með honum á Mannskaðahóli á
Höfðaströnd og Bjarnastöðum í Unadal
og eignaðist með honum börn, tók
ljóðmóðurpróf 1779 í Viðvík, varð
ekkja 1797, gerðist ráðskona hjá Jónasi
Scheving sýslumanni á Víðivöllum og
síðan á Leirá í Borgarfirði, giftist öðru
sinni árið 1806 séra Engilbert Jónssyni
á Lundi í Lundarreykjadal, andaðist þar
árið 1813. Í þættinum var talið að sonur
Guðrúnar fyrir hjónaband hafi verið
Ásmundur Jónsson bóndi á Bjarnastöðum
og var þar fylgt sögn Gísla Konráðssonar
sagnaritara. Kona Ásmundar var Kristín,
laundóttir Þorkels hreppstjóra á Bakka í
Viðvíkursveit, Ólafssonar bryta á Hólum,
Jónssonar. Þau Ásmundur og Kristín voru
bæði fædd 1769.
Virtist nú allt slétt og fellt og lokið
þessari rannsókn á ævi og högum merkis-
persónunnar Guðrúnar Ólafsdóttur.
Ég varð önnum kafinn við kennslu og
málvísindarannsóknir í Svíþjóð og hvorki
staður né stund fyrir grúsk í þjóðlegum
fræðum en Guðmundur Sigurður hélt
áfram þrotlausum athugunum sínum
á áður órannsökuðum heimildum til
íslenskrar mannfræði. Líður svo og bíður
fram í janúar 2008 að mér berst merkilegt
og rækilegt bréf frá Guðmundi þess efnis
að Ásmundur hafi alls ekki verið sonur
Guðrúnar heldur tengdasonur – Kristín
kona Ásmundar hafi á hinn bóginn verið
dóttir Guðrúnar og Þorkels Ólafssonar
á Bakka! Þar á ofan hafi þetta ekki verið