Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 182
SKAGFIRÐINGABÓK
182
góðu veðri, og gerir Stefáns sér von um
að báturinn hafi ekki verið farinn frá
Akureyri, þegar sendimaður Ryders hafi
komið þangað.7
Sú varð einnig raunin. Ekkert varð út
að Hólar yrðu sendir norður en Víkingur
kom til Haganesvíkur fjórum dögum
eftir strandið og tók skipbrotsmennina,
alla nema fjóra sem eftir urðu. Voru það
skipstjórinn, fyrsti stýrimaður, bryti og
bátsmaður. Þeir fóru ekki fyrr en búið
var að ná því sem bjargað varð.
Eggert Ó Briem sýslumaður á Sauð-
árkróki fór þegar út í Fljót eftir að
hann fékk vitneskju um strandið. Þar
dvaldi hann þó stuttan tíma en setti
Guðmund Davíðsson hreppstjóra á
Hraunum fulltrúa sinn á strandstað.
Nauðsynlegt var að flýta sem mest
björgun farmsins og nýtilegra hluta úr
skipinu. Það lá í stórgrýti fyrir opnu hafi
og ein óveðursrumba gat rústað skipið í
fjörunni. Þess vegna var brýnt að fá sem
flesta menn og báta til björgunarstarfa.
Einungis voru þó tiltækar smáfleytur,
mest fjögurramanna för og fáeinir
sexæringar.8
Sjóprófin
ÞANN 12. NÓVEMBER setti Eggert Briem
sýslumaður sjórétt í Haganesvík til
að grafast fyrir um orsakir strandsins.
Teknir voru til yfirheyrslu skipstjóri
skipsins, stýrimaður og fleiri skipverjar.
Eftir framburði þeirra má glögglega rekja
atburðarásina. Vitnisburður skipverja
er skráður á dönsku og verður því
endursagður eftir því sem efni standa til.
Carit Ryder skipstjóri greindi frá því
að upp úr hádegi 6. nóvember hefði
framskipun verið lokið á Ísafirði og lagði
skipið af stað þaðan kl 3:30 síðdegis.
Veðurútlit var gott, vindur norðvestlægur
og gaf góða landsýn um kvöldið því að
norðurljósin vörpuðu birtu á snævi þakið
landið. Klukkan kortér gengin í 9 voru
þeir undan Horni í 1½ kvartmílu fjarlægð
og var stefnan sett á Siglunes. Veðrið var
enn tiltölulega bjart svo að skipverjar
greindu vel Strandirnar í fjarska. Siglt var
hraðbyri því að vegna hinnar löngu tafar
við lestun við Faxaflóann og á Ísafirði
vildi skipstjóri komast sem fyrst inn á
Eyjafjörð til að geta losað þar og lestað
tilfallandi varning daginn eftir. Um
ellefuleytið var skipstjóri enn í brúnni en
Eggert Briem sýslumaður.
Eigandi myndar: HSk.
7 Ísafold 22. 11. 1899, bls. 290.
8 HSk 47a, 4to, bls. 135–136.