Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Side 39
TMM 2017 · 2 39
Kristín Ómarsdóttir
„Ég er með kókómjólk
sem ég stal í búðinni.“
Viðtal við Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur rithöfund
Sigurlín Bjarney Gísladóttir leitar að jafnvægi fyrir margbrotinn heim, úr
rústum heimsmynda býr hún til samhengi sem varir – eitt augnablik: á
næstu síðum hrynur allt; úr nýjum brotum verða til ný samhengi og hrynja.
Hún leitar þolinmóð leiða úr ógöngum, gefst ekki upp og dregur manni ólík
vegakort þangað: heim að lausn. Hún er forvitin, útilokar fátt, leitar fanga
víða, alin upp í þorpi þaðan sem sést til allra átta, í landslagi þar sem augun
byrja ósjálfrátt að reisa byggingar og hallir þegar ferðast er um svæðið. Í
skáldskap hennar skiptir harmurinn stöðugt um ham, tilbúinn og viðbúinn
í næstu atrennu þegar fyrri atrenna feilar. Harmur merkir ekki endalok.
Sigurlín Bjarney er að hefja doktorsnám og á leið til ársdvalar í Svíþjóð
þegar viðtalið er tekið sumarið 2016. Hún á að baki háskólanám í íslensku,
ritlist og heimspeki hér á Íslandi, byrjaði ung að skrifa, gaf út sína fyrstu
bók þrjátíu og tveggja ára og telst til ungs höfundar og upprennandi á mæli-
kvarðanum sem menn styðja sig við yfir kaffibollasamræðum. Eftir Sigur-
línu Bjarney hafa komið út sex bækur ljóða og sagna en þá fimmtu samdi
hún í slagtogi sjö skáldkvenna.
***
Takk fyrir að koma í viðtal við mig fyrir Tímarit Máls og menningar
Sigurlín Bjarney. Viltu segja mér hvar þú ert fædd og hvenær, hvað heitir
mamma þín, hvað heitir pabbi þinn, áttu systkini, hvað heita þau – ef þú
kærir þig um að svara því – hvar í röðinni ertu fædd og hvar ólstu upp?
Ég fæddist 9. febrúar 1975 og er með þeim síðustu sem fæddust á Sólvangi
í Hafnarfirði. Já, mamma mín hét Lovísa Þórðardóttir og pabbi minn heitir
Gísli Arnbergsson; sérstöku og óalgengu föðurnafni. Ég á einn bróður sem er
tveimur árum yngri en ég og heitir Sigtryggur Jón og er kallaður Siddi. Svo
á ég aðra foreldra sem bjuggu mig til og heita María Lovísa og Sigurjón og
eldri hálfsystur sem heitir Rut Kolbrún. Ég bjó fyrstu sex æviárin í Keflavík
en flutti síðan til Sandgerðis og ólst þar upp.