Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Blaðsíða 48
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
48 TMM 2017 · 2
öldina og færi miklar fórnir til að elta þessi fiðrildi, steypi mér í skuldir fyrir
þetta nám. En ég trúi að þetta verði allt til góðs á einhvern hátt.
Þú namst ritlist við háskólann.
Já, það hafði mikið að segja, ekki bara námið heldur félagsskapurinn. Ég
eignaðist vini sem líka elska skáldskap og skrifa og ég elska það sem þau
skrifa, get lesið yfir fyrir þau og þau fyrir mig – það er dýrmætt. Í náminu fór
ég að taka skrifin meira alvarlega. Héðan í frá yrði ekki aftur snúið.
Hvenær byrjaðir þú að skrifa?
Man fyrst eftir mér í grunnskóla að byrja að bulla og svo skrifaði ég
spennusögu í fimmta bekk og var ánægð með hana en hún kom tilbaka frá
kennaranum útötuð rauðum strikum. Í grunnskóla fann ég hvað var gaman
að skrifa, það hélt áfram í framhaldsskóla og svo byrjaði ég að skrifa af
alvöru árið 1998 – þá gerðist eitthvað – og ég samdi sögurnar sem birtust í
Svuntustreng.
Í kringum mig voru engir rithöfundar eða listafólk. Kannski hafði lestur
þessi áhrif. Plata með Sigurrós sem kom út um þetta leyti hafði áhrif: ég fór
í trans þegar ég hlustaði og margir textarnir urðu þá til.
Hvenær vildir þú verða rithöfundur?
Frá því ég byrjaði að skrifa sögurnar árið 1998 en ég átti í baráttu við
orðið rithöfundur; finnst það ekki mitt að ákveða heldur annarra. Ég gæti
skrifað bara fyrir mig en svo þarf maður samtalið, maður kemst ekki undan
þörfinni fyrir samtal. Svo er eitt sem hefur fylgt mér lengi en ég treysti því
yfirleitt ekki að ég hafi næga hæfileika til að geta skrifað, sjálfsmatið getur
oft verið ansi lágt – ég hlusta á þessa rödd en tek ekki mark á henni og held
áfram að skrifa, njóta þess að skrifa, það er aðalatriðið.
Sækir þú jafnt áhrif í útlenskar bókmenntir og íslenskar?
Já, núna, en ég hef alltaf reynt að fylgjast sérstaklega vel með íslenskum
bókmenntum.
Gerir þú greinarmun á amerískum og evrópskum áhrifum?
Nei.
***
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Þegar sjálfstraust og mýkt kemur saman, heiðarleika, einbeitni og húmor.
Hvað metur þú minnst í fari annarra?
Undirferli, fals, baktal.