Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Page 4
4 TMM 2016 · 4
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
Gosvirkni í íslenskri
kvennabaráttu
Femínismi sem pólitísk hugmyndafræði á sér aldalanga sögu og kvenna-
baráttu í formi baráttuhreyfinga má rekja aftur um að minnsta kosti 150 ár.1
Í þessari sögu hefur hugtakið „bylgjur“ gjarnan verið notað um ris og hnig
baráttunnar og er þá talað um fyrstu bylgju, aðra bylgju o.sfrv.2 Hér er lagt til
að hugtökin „gosvirkni“, „skjálftar“ og „gos“ séu hentugri samlíkingarhugtök
því þau lýsa betur þeim óróa sem á sér stað áður en baráttuhreyfing verður
til og þeim sprengikrafti sem einkennir störf og áhrif slíkra hreyfinga. Einn-
ig, eins og ég hef áður ritað um, nýtist persónuhugtakið í mannfræði einkar
vel til að skýra hvers vegna konur leggja út í kvennabaráttu og sameinast um
ákveðin málefni er varða réttindi, tækifæri og stöðu kvenna.3
Í þessari grein er fyrst fjallað um gosvirkni og persónuhugtakið og síðan
er saga íslenskrar kvennabaráttu fram til dagsins í dag rakin með tilvísun
til þessara hugtaka. Stiklað er á stóru því þessi saga er bókarefni. Að lokum
verður sjónum beint að því hvort greina megi gosóróa eða jafnvel gos í
kvennabaráttu samtímans.
Gosvirkni
Jarðskorpan er á sífelldri hreyfingu og nú er sú kenning viðtekin að jarð-
skorpan skiptist í fleka sem rekur um yfirborð jarðar. Þessir flekar rekast á,
nuddast saman, ýtast hvor frá öðrum eða annar þrýstist undir hinn. Á fleka-
samskeytum byggist upp spenna sem losnar við jarðskjálfta, en einnig geta
skjálftar orðið á miðjum flekum vegna staðbundins þrýstings. Jarðskjálftar
eru vísbending um gosóróa en hann kemur fram á skjálftamælum sem nær
samfelldur lágtíðnititringur. Gosórói getur verið undanfari eldgoss en þá
brýst kvika upp á yfirborð jarðar í formi hrauns, ösku og lofttegunda. Það
er kallað gosvirkni. Undir eldstöð myndast kvikuhólf en kvikan getur brotið
sér leið úr megineldstöðinni og komið upp annars staðar. Ef endurtekið gýs
í sömu eldstöð hlaðast upp eldfjöll og þau eigum við mörg á Íslandi. Eldgos
tekur enda þegar kvikuhólfið er tæmt eða þegar kvikan leitar annað.4
Kenning mín er sú að kvennabarátta falli að þessum lögmálum gosvirkni.