Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 18
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
18 TMM 2016 · 4
með ömmu að sjá stórmyndina um Ghandi. Ó! – ég gleymi virkum fjöl-
skyldumeðlimi, honum Chaplin. Ég held að við höfum séð myndirnar hans
í Frakklandi, sumsé á undan Disney. Ég man eftir nokkrum mjög áhrifa-
ríkum kvikmyndahátíðum en myndirnar renna saman í minningunni. Ég
man tónlistina og litina úr ógleymanlegri rúmenskri mynd og að í henni var
dvergur – ekkert man ég annað. Hvaða leitarorð á maður að setja í leitar-
vélina? Mér finnst stundum eins og ég sé hálfviti.
Ég gúglaði og fann stærstu dvergafjölskyldu sem skrásettar sögur fara af,
Ovitz hét hún og Lillaput leikflokkurinn þeirra. Þau komu frá Rúmeníu og
eru fjölmennasta fjölskylda sem vitað er til að lifði af fangelsun í Ausch-
witz. Efniviður sem ætti ef til vill heima í bók eftir þig.
Já, þakka þér fyrir, eigum við kannski að skrifa saman kvikmyndahandrit
um þessa famelíu? Það er annars eins og maður þurfi að stilla heilann alveg
sérstaklega til að muna eftir öllum kvikmyndunum sem hafa haft áhrif á
mann, eins og þær leggist strax niður í undirvitundina. Ég fór mikið í bíó í
Búdapest og París, þegar ég var ekki byrjuð að tala málið, þá var svo ótrúlega
gott að sitja einn í bíói. Í framhaldi af þessu viðtali, Kristín, þá er ég að hugsa
um að skrifa lista af kvikmyndum og bókum sem ég hef séð og lesið og sem
hafa haft áhrif á mig. Þessi listagerð gæti tekið nokkur ár.
Já úff, en hvort fannst þér skemmtilegra: bók eða bíó?
Bók en annars finnst mér ekki gott að velja svona á milli.
Afsakaðu en ég held áfram stífum valspurningum. Hvernig barn varstu:
óþekk, stillt, hvort tveggja?
Undanfarið hef ég heyrt að ég hafi alltaf verið kát en svo hefur verið að
rifjast upp fyrir mér að í mér var mótþrói og ég var kölluð Emma öfugsnúna,
líka af því ég sneri fötunum vitlaust – ég held ég verði öfugsnúnari með
árunum.
Varstu félagsvera, einfari? Ertu félagsvera, einfari?
Hvort tveggja.
Varstu trúuð? Ertu trúuð?
Já, það held ég nú, en ég er ekki mjög góður trúfélagi eða sanntrúuð, ég
nýti mér eitt og annað úr hefð trúarbragðanna en trú mín er annars persónu-
leg og dulspekileg og gengur líklega þvert á trúarbrögðin. Ég er síðan alltaf
að æfa mig í bæninni.
Hvenær byrjaðir þú að skrifa?
Eins og ég nefndi byrjaði ég að skrifa dagbækur og hef gert síðan. Svo
samdi ég sögur munnlega vegna óþolinmæðinnar – ég var fljótari að tala