Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Page 21
Í d a g e r f e n g i t í m i d ý r a n n a o g e n g i n n t í m i f y r i r l j ó ð
TMM 2016 · 4 21
ræðu við son minn. Ég er ekki á móti neinum orðum en mörg orðasambönd
fara í taugarnar á mér, til dæmis staðlaðar samsetningar, en þær geta líka
verið þægilegar og fyndnar. Pólitíkusar lenda í því að tönnlast á því sama
einsog: tvímælalaust og klárlega. Svo get ég ekki vanist fésbókarorðum eins
og: dúllan og krúttbomban.
Ertu hugrökk?
Þegar ég lít um öxl finnst mér ég stundum vera hugrökk en líka ansi hug-
laus. Ég er rög, fóbísk og oft mikill aumingi. Ætli ég sé hugrakkari í stóru
hlutunum? Það kallast kannski frekar fífldirfska. Hugrekki er erfitt að meta
og sérstaklega hjá sjálfum sér – ég held það sé bara ómögulegt.
Ertu ævintýragjörn?
Já, ég er líklega á einhvern hátt ævintýragjörn en mér finnst ekki gaman
að vera í ævintýri sem einhver annar hefur ákveðið að sé ævintýralegt. Ég
hef alltaf sýnt mótþróa gagnvart ævintýrum sem eru fyrirfram skipulögð
með fyrirframgefnum ævintýraljóma. Mér finnst það vera móðgun við upp-
lifunina. Og nú er orðið upplifun orðið mjög vinsælt þegar selja á eitthvað
sniðugt. Hvaða annað orð gætum við notað?
Bragi Valdimar Skúlason stingur upp á að nota orðið reynsla: þetta er
mögnuð reynsla, o.s.fr.v.. Og jafnvel orðið ævintýri. Eða bara að maður tali
sig og skrifi í kringum þetta „óféti“, svo ég vitni til hans. Við hvaða annað
starf myndirðu kjósa að starfa við?
Áður en ég eignaðist barn sá ég ekkert annað fyrir mér en að ég yrði rithöf-
undur. Mér þætti mjög erfitt að lifa án þess að skrifa. Ef ég yrði að velja annað
starf myndi ég vilja vera kvikmyndaleikstjóri eða leikhúsmanneskja – tón-
skáld eða hljómsveitarstjóri – myndlistarkona og málari – grasafræðingur
og smyrslafræðingur – búa til ilmvötn frá grunni og búa til litapallettur
– eða búa til nýja nuddaðferð fyrir ungabörn og hanna ungbarnadans – eða
vera fornleifafræðingur og mannréttindalögfræðingur – náttúruverndarlög-
fræðingur – rannsóknarblaðamaður eða listaverkasafnari – jafnvel uppboðs-
haldari – bóksali já, eða útgefandi, þýðandi, kennari – ekki samt sundkenn-
ari – eyrnalæknir – það er áhugavert að kanna eyrun á öðrum.
Hvaða annað starf myndirðu alls ekki vilja starfa við?
Ég myndi alls ekki vilja vera böðull. Ég er á móti dauðarefsingum.
Hvað meturðu mest í fari manneskju?
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það er eitthvað eitt og jú, sam-
kennd, ástúð, hlustunargáfa, kímnigáfa, opnun, viska. Ég held ég verði að
segja að það einstaka í hverri manneskju er það mikilvægasta og ef maður
finnur það fyrir, sama hvað það er, þá metur maður það mest.