Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 56

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 56
Á s t r á ð u r E y s t e i n s s o n 56 TMM 2016 · 4 hann er vakinn eftir stuttan svefn á veitingahúsi segir hann: „Í hvaða þorp hef ég villst? Er þá höll hérna?“ (8). Getum við trúað honum? Eru þetta láta- læti? Markviss blekking? Bjargræði villuráfandi manns? Það á að reka hann burt úr greifadæminu vegna þess að hann virðist vera þar í leyfisleysi en þá tilkynnir hann skyndilega að hann sé landmælingamaður og að greifinn hafi kallað sig til starfa. Allt bendir til að hann sé að villa á sér heimildir og það kemur honum í opna skjöldu, sem og líklega flestum lesendum, þegar þessi starfsráðning er staðfest af hálfu hallarinnar. Hins vegar fylgir ekki í sögunni nein staðfesting á því að K. sé landmælingamaður og í ljósi utangarðsstöðu hans í þorpinu er starfsheitið býsna kaldhæðnislegt; honum gengur ekki vel að kortleggja eða mæla nokkurn skapaðan hlut. Hann reynir þó að kanna staðinn á eigin forsendum og lætur nokkuð fara fyrir sér en virðist þó ein- kennilega illa áttaður. Um þetta mætti nota frásagnarfræðileg hugtök, en hér verður látið nægja að segja að hvorki sögumaður né söguhöfundurinn (höf- undurinn innan verksins, það merkingarskapandi afl sem „birtist“ í verkinu sem heild) myndi skýrt samband við þennan K. og fyrir vikið verður sam- band lesanda við hann líka óglöggt og jafnvel ráðvillt. Spurningin „Hver sér hvað?“ nær því einnig til lesandans. Svo undarlega vildi til, rétt um það leyti er ég var að huga að síðustu leiðréttingum á próf- örk Hallarinnar, staddur erlendis snemma árs 2015, að ég rakst af hendingu á nýlega bók sem ég hafði ekki heyrt af en kallaði með heiti sínu beint inn í hugleiðingar mínar um Höllina, í lok áralangs ferðalags okkar meðþýðanda míns um skáldverkið. Þessi bók heitir What We See When We Read og er eftir Peter Mendelsund. Hann er bóka- og kápuhönnuður og beitir í þessari bók óspart svart-hvítri mynda- og prenthönnun sem tjáningarleið í tengslum við texta sem fjallar um fyrirbærafræði lesskynjunar. Hvað er það sem við sjáum þegar við lesum? Það ýtti svo enn frekar við mér að á miðri framkápu bókarinnar, sem er svört með hvítum bókstöfum, er lítil mynd af skráargati – mynd sem er þó jafnframt eins og gylltur spegill. Eftir það kom mér ekki á óvart að Höllin skyldi vera á meðal fjölmargra skáldsagna sem við sögu koma í umfjöllun og grafískri túlkun Mendelsunds á sjónreynslu lesandans. Vart hafði ég lokið við bókina þegar ég, tveimur dögum síðar og heim- kominn, fékk í hendur aðra nýja bók úr óvæntri átt – bók sem geymir fundargerðir Tilraunafélagsins í Reykjavík frá því snemma á tuttugustu öld og tengt efni. Þessi bók, sem gefin er út af Karlottu J. Blöndal, er einnig mjög sérstakur svart-hvítur prentgripur. Kápan í þessu tilviki alhvít eða raunar bláhvít eins og snjór verður stundum, en hluti verksins eru fjörutíu blöð (áttatíu blaðsíður) sem eru alsvört og ótölusett, en þó talin með eins og sést af blaðsíðutali í framhaldinu. Þessar dökksíður enduróma bókarheitið: Raddað myrkur, en á titilsíðu eru einnig þessi einkunnarorð „Sést ljós og maður í því“.6 Ekki verður hér gerð sérstök grein fyrir inntaki þessarar bókar, þeirri forvitnilegu innsýn sem hún veitir í miðilsfundi sem þróast jafnvel út í reim- leika, og í sviðsetningu sem virðist leika á mörkum þekkingar og blekkingar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.