Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Blaðsíða 139

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Blaðsíða 139
U m s a g n i r u m b æ k u r TMM 2016 · 4 139 hrokafullra embættismanna, í eldmóði konungs eru Skaftáreldarnir komnir til baka og svíða sárt nýja kynslóð embætt- ismanna og ekki betri. Jörundur hefnir semsé Jóns. Þess vegna er ákaflega vel til fundið að rekja þessar tvær sögur saman. Nú vill svo til um þræði að þá má rekja í hvora átt sem vill, í þessu tilviki bæði fram og aftur í tímann og það nýtir Einar Már sér, því getur hann leyft sér slík ferðalög á hinu breiða sviði sög- unnar. Væri það tilefni til margvíslegra hugleiðinga. En hann gengur lengra, hann skoðar einnig alls kyns þræði á hinu lægra stigi einkalífsins sem víxlast alla vega, svo sem þræðina í samskipt- um Guðrúnar Johnsen, Jörundar og Finns Magnússonar sem hófust á þann hátt að Guðrún varð „Hundadaga- drottning“, blíð ástmey Jörundar, en Finnur bauð ódeigur sjálfum Hunda- dagakonunginum byrginn, en lyktaði með því að Guðrún var orðin beininga- kona í Kaupmannahöfn og sótti heim Finn sem hafði þá fengið slæman ryð- blett á frægðarskjöldinn þegar hann las fornan skáldskap út úr jökulrispum; þau höfðu bæði misstigið sig við Eyrarsund. Stíll Einars Más er á köflum líkt og rabb eða „causerie“ eins og íslenskir blaðamenn sögðu stundum í mínu ung- dæmi, og getur hann því leyft sér að halda sumum þráðunum áfram og benda á alls kyns tengingar við nútímann, „byltingu“ Jörundar sem vildi setja á fót nýtt Ísland og „búsáhalda- byltinguna“ sem hafði sams konar mark- mið. Hann getur jafnvel slegið fram spurningu um það sem kynni að hafa gerst ef meginþráðurinn hefði haldið áfram á annan hátt en varð, ef uppátæki Jörundar hefði heppnast, ef hann hefði orðið yfirvald á Íslandi, en þá að sjálf- sögðu í skjóli og umboði Englendinga. Væri gott fyrir menn á þessum síðustu tímum hnattvæðingarinnar að hugleiða það. Allt þetta er listilega gert og skemmti- legt aflestrar; og væri tilvalið að Einar Már læsi upp úr bókinni í konungshöll Jörundar við Austurstræti. En þegar maður lokar henni lætur hann sig kannske dreyma um aðra sögu, einhvers konar framhald, um Móðuharðindi frjálshyggjunnar sem byrgðu allan sannleika í mósku, um fagnaðarlaust Hundadagaveldi ólígarkanna og um þá Skaftárelda sem brenndu upp eigur manna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.