Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Side 18
16
í desember 1938 fram i janúar 1939, aðra í febrúar—marz og þá þriðju
í maí—júní. Fyrsti og þriðji faraldurinn er á skýrslum talinn inflú-
enza, en sá í miðið kvefsótt. Um það skal ekkert fullyrt, hvort þessi
greining sé rétt, enda erfitt að greina þar á milli. Allar voru þessar
bylgjur allþungar og' fóru viða yfir. Um þá fyrstu er getið í skýrslu
ársins 1938. Miðfaraldurinn hagaði sér sem allþung kvefpest og virtist
taka börn öllu fremur en fullorðna.
Hróarstungu. Stakk sér niður við og við, eins og gengur.
Seyðisfí. Kvefsótt gerði vart við sig alla mánuði ársins. Mest kvað
að henni í marz. Aðallega börn, sein sýktust, og var um greinilegan
faraldur að ræða.
Norðfj. Eins og fyrr aldrei kveflaust allt árið. Einu sinni reglulegur
faraldur — í marzmánuði.
Reyðarfj. Með minnsta móti þetta ár.
Berufj. Gekk mánuðina apríl, maí og júní, aðallega hér í þorpinu.
Á sumum heimilum lögðust allir næstuni samtímis með liáum hita.
Irlestir lágu stutt, en þó fengu nokkrir þráláta bronchitis, en eftirköst
urðu engin. Nokkuð bar á miðeyrnabólgu í sambandi við kvefið.
Síðu. Kvefslæðingur gekk yfir í maí og' svo aftur seinustu 3 mán-
uði ársins. I seinna skiptið bar nokkuð á þrálátum hósta, en varð ann-
ars að teljast vægt.
Mýrdals. Kvefið einkum slæmt í janúar og desember.
Vestmannaeyja. Mest áberandi á vertíð, þegar aðkomumenn eru
flestir og vosbúð og vökur mestar hjá sjómönnum.
Rangár. Töluvert uin kveffaraldur fyrra part ársins, lítið úr því.
Langútbreiddast samtímis inflúenzunni, og má vel vera, að sumt af
því, sem skrásett er sem kvefsótt, hafi verið væg inflúenza. Yfirleitt
var kvefið frekar vægt.
Egrarbakka. Mest bar á kvefsótt fyrstu 2 mánuði ársins, en mjög'
lítið vor- og' sumarmánuðina. Oft allþung.
fírímsnes. Oftast væg. Þó lungnabólga upp úr einstaka tilfelli.
Iieflavíkur. Allútbreidd framan af ári, en rann svo saman við in-
flúenzu, sem hélt sér fram í júní.
3. Barnaveiki (diphtheria).
Töflur II, III og IV, 3.
Sjúldingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl......... 9 14 10 3 1 68 68 8 „ 4
Dánir ........ 1 1 „ „ „ 4 3 2 „ »
Er aðeins getið í 2 héruðum, Rvík og Hafnarfj., sín 2 tilfellin
skráð á hvorum stað.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. í síðustu viku febrúar fannst 1 barn sýkt af barnaveiki.
Rannsakaði ég, eins og ég hef fyrir venju, allt nánasta umhverfi
með þeim árangri, að smitberinn fannst, en það var ung stúlka, seni