Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Page 81
79
Getið er um aðburð 22fi2 barna, og var hann í hundraðstölum
sem hér segir:
Höfuð bar að:
Hvirfill 94,56%
Framhöfuð 1,68—
Andlit 0,27— 96,51%
Sitjanda og fætur bar að: Sitjandi 2,34%
Fótur 0,75— 3,09%
Þverlega 0,40—
52 af 2293 börnum eru talin hafa komið andvana, þ. e. 2,3% — í
Hvík 26 af 848 (3,1%) — en hálfdauð við fæðinguna 44 (1,9%). Ófull-
hurða voru talin 93 af 2291 (4,1%). 6 börn voru vansköpuð, þ. e. 2,6%a.
Af barnsförum og úr barnsfararsótt hafa dáið undanfarin ár:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Af barnsförum 4 6 7 4 6 7 3 6 3 3
0r barnsfarars. 5 3 1 3 2 3 1 3 3 2
Samtals....... 9 9 8 7 8 10 4 9 6 5
Orsakir barnsfarardauðans eru í ár blóðlát 2 og aðrir fæðingarsjúk-
dómar 1.
í skýrslum lækna um fæðingaraðgerðir (tafla XIV ) eru taldir þessir
fæðingarerfiðleikar helztir: Fyrirsæt fylg'ja 16, alvarlega föst fylgja
(losuð með hendi að innan) 11, fylgjulos 6, meiri háttar blæðingar
14, fæðingarkrampar 7, grindarþrengsli 10, þverlega eða skálega 5,
vatnshaus 2.
A árinu fóru fram 49 fóstureyðingar samkvæmt lög'um, og er gerð
grein fyrir þeim í töflu XII. Hér fer á eftir
Yfirlit
.Vfir þær fóstureyðingar (21 af 49 eða 42,9%), sem voru framkvæmdar
meðfram af félagslegum ástæðum.
I-andsspitalinn.
1- 26 ára óg. vinnukona á Siglufirði. Komin 12 vikur á leið. Vanfæi
í fyrsta sinn.
Sjúkdómur: Erysipelas recidivans (hefur peroneuslömun og
styttan fót eftir mænusótt. Skurðaðgerð á fætinum fyrir nokkr-
um árum. Ör aftan á hælnum, sem rifnar iðulega upp og sækir í
heimakoma.
Félagslegar ástæður: Örbirgð og umkomuleysi.
-• 37 ára g. bílstjóra í Reykjavík. Komin 10 vikur á leið. 9 fæðingar
á 15 árum. Börnin (15, 13, 11, 9, 8, 5, 4, 3 og 1% árs) á framfæri
foreldranna. íbúð: sæmileg 4 herbergi og eldhús í kjallara. Árs-
tekjur 4000 kr.
S j ú k d ó m u r : Ulcus varicosum.
Félagslegar ástæður: Fátækt og ómegð.
'*• 38 ára g. sjómanni í Reykjavík. Komin 4 vikur á leið. 4 fæðingar