Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Page 38
36
et'tir 4—5 daga, frá því að veikin hófst. Taugaveiki kemur inanni fljótt
í hug, en við nánari athugun eru þeir sjúklingar ekki líkt því eins al-
teknir í byrjun veikinnar og þeir sjúklingar, sem hér um ræðir. Eg'
sendi Rannsóknarstofu Háskólans hráka og blóð til rannsóknar. Því
miður komst það ekki til rannsóknar fyrr en eftir 10—12 daga, en helzt
von um, að rannsóknin komi að haldi og beri árangur, er sú, að hún
sé gerð í byrjun veikinnar. Þar sem jiessi rannsókn bar ekki árangur,
en klínisk einkenni bentu á sérstaka sjúkdómstegund, var tekið blóð
úr 5 sjúklingum og sent prófessor Dungal, en hann sendi það til
Lundúna til rannsóknar („Komplementbindungsreaktion")- Reynd-
ist þessi rannsókn jákvæð i öllum tilfellunum, og er þar með fengin
sönnun fyrir því, að psittacosis hefur sýkt hér 6 sjiiklinga í septem-
bermánuði í haust. Til þess að fyrirbyggja veiki þessa eftirleiðis er
öruggast að friða fýlinn, enda er þess full þörf, því að honum fer
stöðugt fækkandi. Síðastliðið haust veiddust hér rúmlega 6 þúsund
íylungar, og mun verðmæti þeirra nema ca. 3 þúsund krónum. Önnur
eins fjárhæð eða jafnvel hærri hefur farið í veikindakostnað og vinnu-
tap sjúklinganna, sem veiktust hér. Ég tel, að tæpast sé hægt að
reyta fýl með gúmhönzkum, nema þá þunnum og ónýtum, og erfitt
mun verða að fá fólk hér til þess að reyta fýl, eftir það, sem á undan
er gengið.
Sepsis:
Dnla. 1 tilfelli af kryptogen sepsis, kona 60 ára. Veiktist skyndi-
lega með miklum kölduskjálfta og 40° hita. Næstu daga féll svo hit-
inn lytiskt, en sté brátt aftur upp í rúm 40° með köldu og verk undir
vinstri síðu (miltisstækkun). Endurtók þetta sig nokkrum sinnum,
þar til ég' ráðlagði prontosíl, og batnaði þá konunni bæði fljótt og'
vel. Fannst mér þetta sjúkdómstilfelli minna talsvert á febris undulans,
og' harma ég' mjög, að ekki var hægt að gera agg'Iutinationspróf á
blóði sjúklingsins.
Rei/ðarfj. Sepsis: Kona fékk bólu á efri vör, reif ofan af henni og'
joðaði. Daginn eftir diffus phlegmone um alla kinnina og lopi í
kringum augað. Reyndi ég incisiones, prontosíl, detoxin o. fl., en
ekkert dugði, og konan dó eftir viku legu.
Vestmannaeyja. 1 sjúklingur. Ratnaði við prontosíl- og detoxín-
innspýtingar i æðar og vöðva.
B. Aðrir næmir sjúkdómar. Krabbamein. Drykkjuæði.
Töflur V, VI, VII, 1—4 , VIII, IX og XI.
1. Kynsjúkdómar (morbi venerei).
Töflur V, VI og VII, 1 —3.
S júklingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Gonorrhoea . 519 400 372 482 576 665 632 597 648 492
Syphilis . ... 29 21 50 37 30 35 16 8 6 14
Ulcus vener. . 15 3 1 7 2 2 1 »» >> »>