Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Page 98
orðið um eða yfir hundrað krónur á sólarhring. Horfir lil hinna
mestu vandræða um þessi efni.
Isafj. Sökum stöðugra vandræða hér með geðveikt fólk var í það
ráðizt að byggja yfir það bak við Elliheimilið. Voru þar innréttaðii' 6
ldefar; eru þeir miðstöðvarupphitaðir og' að öllu leyti sæmilegir. Er
deildin starfrækt í sambandi við Elliheimilið. Árið 1938 voru vistaðii'
þar 6 sjúklingar.
Ögur. Geðveikum fjölgar í héraðinu með ári hverju.
Blönduós. Geðveikar urðu 2 konur, sem sendar voru að Kleppi enir
nokkra dvöl í sjúkrahúsinu hér, en systir annarrar, sem einnig hefur
verið sett á geðveikraskrá, dvelur í heimahúsum, þótt hún ætti að
réttu lagi einnig heima á hæli.
Sauðárkróks. Meðferð á geðveiku fólki mun yfirleitt vera góð. 1
kona telst geðveik. Býr hún út af fyrir sig, en er annars alveg rugluð.
Fleiri eru, sem eru smáskrítnir, en geta þó tæpast taiizt geðveikir.
Öxarfj. Meðferð á fávitum o. s. frv. er sérlega góð.
Siðu. Aðeins 1 kona geðveik á þessa árs skýrslu, en auk hennar
hafði ég til meðferðar 3 aðrar konur, sem líklega ætti að telja hér
með.
U m f á v i t a .
Öxarfj. Meðferð á fávitum o. s. frv. er sérlega g'óð.
U m h 1 i n d a .
Hesteyrar. Alblindir eru engir, en aftur á móti 4 með mjög bil-
aða sjón.
Síðu. Tala blindra stendur í stað hin síðustu ár.
Um deyfilyfjaneytendur.
Rvík. Deyfilyfjaneytendur rnunu einhverjir vera til, en ekki hvgg
ég mikil brögð að því.
Blönduós. Deyfilyfjaneytandi telst nú 1 gömul kona, sem að réttu
lagi hefði mátt telja fyrr. Hún liefur orðið morfínisti upp lír veikind-
um og fær ca. 2. gr. af morfíni á manuði.
VII. Ýmis heilbrigðismál.
1. Heilbrigðislöggjöf 1939.
Á árinu voru sett þessi lög, sem .til heilbrig'ðislöggjafar geta talizt:
1. Lög nr. 24, 12. júní 1939 um dýralækna.
2. Berklavarnalög nr. 66, 31. desember 1939.
Þessar samþykktir, aug'lýsingar og reglugerðir voru gefnar út af
ríkisstjórninni:
1. Auglýsing um blöndun á íslenzku smjöri í smjörlíki (3. febr.).
2. Reglugerð um skyldutryggingu (21. febr.).
3. Reg'lugerð um áhættuflokkun og ákvörðun iðgjalda fyrir slysa-
tryggingar (21. febr.).
4. Reglugerð um frjálsar slysatryggingar (21. febr)..
5. Iðg'jaldaskrá og atvinnuflokkun í frjálsri slysatryggingu (21.
febr.).