Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Síða 86
84
á ný og var lögð inn aftur og legið skafið. Hún fékk fulla heilsu.
Barnsfarir með mesta móti pathologiskar, því að ég varð tvisvar að
leggja á töng og' gera fraindrátt 3 sinnum. Auk þess gerði ljósmóðirin
á Skagaströnd 1 sinni framdrátt. Fósturláta er ekki getið af ljósmæðr-
um, en mín hefur 4 sinnum verið vitjað af þeim ástæðum, þar af
tvisvar til sömu konunnar. Abortus provocatus var aldrei gerður, og
óleyfilegar fósturlosanir munu engar hafa átt sér stað. Takiuörkun
barneigna á sér stað á svipaðan hátt og áður, enda nokkuð keypt af
tækjum og varnarlyfjum í þeim tilgangi.
Sauðárkróks. Kona hafði verið afar gild, sennilega haft hydramnion.
Stuttu eftir að ljósmóðir kom til hennar, fór gríðar mikið vatn, og
fann lnin þá, að legan var óeðlileg. Var mín þá þegar vitjað, og kom
ég rétt á eftir. Kom í ljós, að um þverlegu var að ræða, og þar sem út-
víkkun var komin, var gerð vending og framdráttur, sem var frekar
erfiður. Barnið var andvana. Konan var multipara. Henni heilsaðist
vel. í 2 tilfellum tangarfæðing, hvort tveggja hjá primiparae, eftir að
fæðing hafði lengi staðið í stað, þrátt fyrir hríðaraukandi lyf. Ljós-
móðirin á Sauðárkróki getur um 1 fósturlát. Auk þess fósturláts, er
kom til aðgerðar í sjúkrahúsinu, er mér kunnugt um 1 fósturlát. Var
]>að abortus completus hjá multipara.
Iíofsós. Ekkert sérstakt að, annað en sóttleysi, og stundum óskað
eftir lækni til að deyfa.
Ólafsfj. Vitjað 8 sinnum. Algengasta orsök ósk um deyfingu. Einu
sinni gerður framdráttur vegna stórs burðar hjá frumbyrju (5500
gr.). í 2 skipti var um fósturlát að ræða. Konu, 25 ára leystist höfn á
6. mánuði. Fékk septiskan hita í nokkra daga. Stúlku, 21 árs, leystisl
höfn á 3. mánuði. Mjög heilsuveil. Kona, 28 ára, var send til Akur-
eyrar og gerður abortus provocatus vegna intoxicatio gravidarum.
Hún hafði haft létta hyperemesis undanfarnar vikur, en var batnað og
ætlaði að fara á fætur. Fékk l)á allt i einu mikia eggjahvitu í þvag og'
ÖIi einkenni fóstureitrunar. Eftir skurðinn hresstist hún, en dó eftir
rúman sólarhring.
Svarfdæla. Nú varð barnsfararsóttin í algleymingi fyrst á vegi min-
um, siðan ég' fór að starfa á eigin spýtur. A stúdentsárunum stundaði
ég einu sinni dauðvona barnsfararsóttarsjúkling, hafði ekki gleymt
viðurstyggðinni og alltaf kviðið næstu uppákomu. En nú var pronto-
sílið heldur ekki sparað og þoldist vel. Sjúklingurinn dó eftir margra
vikna legu í spítala, og við sectio kom í ljós abscessus subphren. Alls
6 fósturlát (3 greind á skýrslum ljósmæðra). 2 af þessum fósturlát-
um voru hjá sömu konunni með 5 mánaða millibili. Ekki kom til
neinna ráðagerða eða ráðlegg'inga um fóstureyðingu og engin greinar-
gerð undirrituð af mér í því augnamiði, en 2 eða 3 konur óskuðu eftir,
að þær væru losaðar við fóstur sín, og' þótti mér einni þeirra satt að
seg'ja nokkur vorkunn, þótt hraust væri, þar sem um 3. þungun á rúm-
um 2 árum var að ræða og' ástæður ekki sem beztar. Ekki kunnugt
um neinar tilraunir til ab. criminalis og ekki um ab. provocatus annars
staðar, gerðan á konum héðan. 2 konur fengu hjá mér leiðbeiningar
um notkun getnaðarverja (hettu og smyrsl).
Höfðahverfis. Eitt skipti vitjað vegna fastrar fylgju. Annað skipt'