Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 140
138
ingu á þeim þegar í stað, og hófust sumir handa til endurbóta. Af
þessum tveimur atriðum má nokkuð dæma, hversu fijótlegt er að
koma hér á endurbótum og hversu greiðfærar leiðir eru í gegnum
mörg skrifstofubákn og eiginhagsmunaklikur.
Borgarnes. Heilbrigðisnefnd er að hvetjá menn til þrifnaðar og
finna að því, sem henni virðist fara aflaga. Mest vandræði eru með
vatnið hér í Borgarnesi - aðeins léleg'ir brunnar og' vfirborðsvatn.
Ráðagerðir voru um að veita vatni til þorpsins handan úr Hafnar-
fjalli i pípum, en líklega dregst það eitthvað eins og margar aðrar
nauðsynlegar framkvæmdir vegna ófriðarins í álfunni.
Bíldudals. Heilbrigðisnefnd hefur verið hér að nafninu til, en ekk-
ert látið á sér bæra í mörg' ár. En nú er nvbúið að skipa heilbrigðis-
nefnd. Fyrsta verk hennar verður að endursemja heilbrigðisreglugerð
Jiorpsins, en hún er frá 1909 og að ýmsu leyli úrelt.
Blönduós. Heilbrigðisnefndir fara í árlega eftirlitsferð að vorinu um
kauptúnin og' finna að þvi, senr þeirn þykir ábóta vant. Hefur þetta
borið ágætan árangur, að því er alla utanhúss umgengni snertir.
Sauðárkróks. Heilbrigðisnefnd er aðeins á Sauðárkróki. Var á
þessu ári gengið frá samningu nýrrar heilbrigðissamþykktar fyrir
kauptúnið, en hún hefur ekki enn þá verið staðfest.
Ólafsfi. A vorin er kauptúnið hreinsað og' rusli ekið burtu, og' er þá
ahnenningur hvattur til að hreinsa lóðir sínar um leið.
Svarfdæla. Heilbrigðisnefnd Svarfdælahrepps lét hreinsa burtu
nokkuð af sorpi og rusli við hús og götur.
Ilúsavíkur. Heilbrigðisnefnd er ekki til nema í Húsavík, og lítur hún
eftir þrifnaði og öðru því, er aflaga þykir fara í heilbrigðismálum. Má
seg'ja, að fólk sé yfirleitt fúst til að taka bendingum hennar og fara
eftir þeim.
Akureyrar. Á árinu hef ég' rannsakað allar verksmiðjur og iðnfyrir-
tæki bæjarins og litið eftir aðbúnaði og hreinlæti þar. í flestum þess-
ara verksmiðja og iðnfyrirtækja bæjarins er aðbúnaður verkafólks-
ins fremur lélegur, og fullnæg'ja tiltölulega fá þeirn heilbrigðiskröfum,
sem gera þyrfti, ef vel ætti að vera. En þessu er mjög örðugt að kippa
i lag í fljótu bragði, þar sem um flest þessara fyrirtækja má segja, að
þau séu gömul og' því húsrými og vélamagn í algeru. ósámræmi hvað
við annað, þannig að í mörgum tilfellum þyrfti þriðjungi meira hús-
næði, ef svo rúmgott og loftgott ætti að vera í kringum vélarnar, sem
æskilegt væri. Minnst ábóta vant í þessu efni er iðnfyrirtækjum
Kaupfélags Eyfirðinga, enda flest í nýjum húsum, þar sem meira til-
lit hefur verið tekið til aðbúnaðar vinnufólksins en gerist i hinum
gömlu byggingum. Aftur á móti hefur klæðaverksmiðjan Gefjun verið
mjög afleit hvað þctta snertir, én lag'ast nú vonandi nokkuð á næst-
unni, þar sem byggð hefur verið á árinu stór steinbygging þar, og
mun ætlunin vera að flytja eitthvað af vélunum úr gamla húsinu
þangað.
Vestmannaeyja. Bæjarstjórn fer oft lítið eftir tillöguin heilbrigðis-
nefndar. Götu- og sorphreinsari bæjarins hefur verið gerður að heil-
brigðisfulltrúa itil fjársparnaðar), og var það ekki borið undir nefnd-
ina áður. Hefur formaður nefndarinnar ekki getað fengið þessu breytt.