Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 112
110
undir skrifstofu mína. Forstjóri Matvælaeftirlits ríkisins hefur og
hækistöð á henni, og er samvinna um allt, er þar að lýtur. Frá 18.
október lét ég bókfæra allar kvartanir, sem fram voru bornar. Til
áramóta komu samtals 15 kvartanir um ýmsar vörur eða umbúðir
þeirra, og reyndust 7 þeirra á rökum bygg'ðar. Mér hafði oft blöskrað
að sjá meðferð, útlit og sölu á hinum svonefnda rjómaís, sem'er al-
geng „barnafæða" hér. Lét ég því taka nokkur sýnishorn hingað og
þangað. Með því að niðurstöður þessara rannsókna, einkum gerla-
rannsóknanna, voru svo hroðalegar, að nærri liggur, að svo meg'i að
orði kveða, að sum sýnishornin væru saurgerlagrautur, lét ég fulltrúa
inína, heilbrigðisfulltrúann og' matvælaeftirlitsfulltrúann, skoða nokkra
staði, þar sem þetta hnossgæti var framleitt. Skoðuðu þeir alls 11
slaði, og' farast þeim þannig orð: „l)Víðast hvar, þar sem framleiðsla
og sala rjómaíss fer fram, er um mjög ófullnægjandi skilyrði að ræða,
og sums staðar beinn sóðaskapur vegna slæmrar aðstöðu og um-
gengni. Og í mörgum tilfellum er hið sama að seg'ja um geymslu og
meðferð hráefna. 2) Við frystinguna er í einstökum tilfellum notaður
Tjarnarís, en í öðruin ís framleiddur i vélum. 3) Salt það, sem notað
er við frystinguna, er í flestum tilfellum hreint matarsalt, keypt í
verzlunum jöfnum höndum. Á stöku stað var saltið ekki vel hreint,
og' hjá einum framleiðanda var um mjög óhreint salt (skrapsalt) að
ræða. 4) Á nokkrum framleiðslu- og sölustöðum var ísinn geymdur og
afgreiddur úr ryðguðum og loklausum járndúnkum (brjóstsykurs-
dunkum).“ Nii eru engin fyrirmæli til um framleiðslu eða sölu á
rjómaís og því erfitt að hafa hendur í hári framleiðenda. Fannst mér
því ekki meg'a svo búið standa og samdi þegar í stað, með aðstoð for-
stjóra Matvælaeftirlits ríkisins, nokkur bráðabirgðaákvæði varðandi
}>etta (sjá síðar um störf heilbrig'ðisnefndar, bls. 137). Skoðunargerð
lét ég fram fara á öllum mjólkur- og fisksölubúðum. Eru nú allar slík-
ar búðir færðar hér á skrá, ásamt lýsingum og öðrum athugasemduni.
Skoðaðar voru 30 mjólkurbúðir og aðfinnslur gerðar við 22 þeirra, en
1 var dæmd ónothæf. Fisksölubúðir voru skoðaðar 34. Var fundið að
16 þeirra, en 5 taldar algerlega ónothæfar. Nú er það svo um reglur
um fisksölu hér í bæ, að þair eru mjög ófullkomnar og alls ekki unnt
að gera nægar kröfur til fisksala samkvæmt þeim. Samdi ég því, ásamt
forstjóra Matvælaeftirlits ríkisins, nýjar reglur uin fisksölu (sjá einnig
siðar um störf heilbrigðisnefndar, bls. 137).
Akureijrar. A árinu hef ég sent 19 matvælasýnishorn til matvæla-
eftirlitsins í Reykjavík til efnarannsóknar. Rannsóknir á hreinlæti og
fitumagni mjólkur fara daglega fram í Mjólkursamlaginu, og hef ég
lækifæri til að fylgjast með þeim og sjá um þær eftir þörfum,
enda tek ég' sjálfur annað slagið mjólkursýnishorn og rannsaka þar.
Um eftirlit og hreinlæti í kjötbúðum og öðruin útsölustöðum er það
að segja, að við, heilbrigðisfulltrúar bæjarins og ég', göngum þar um
annað slag'ið til þess að sjá um, að fylgt sé þeim fyrirmælum, sem
þar um eru sett.