Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 66
64
16. Granuloma.
Stykkishólms. Granuloma sjást hér á hverju hausti í sláturtíðinni,
einkum á börnum og unglingum. Mér hefur reynzt vel að nota við
þau ungv. pyrogall. comp.
Húsavíkur. Á þessu ári var með meira móti af granuloma, og eins
og vant er, mest í sláturtíð á eldri og yngri, sem áttu við horn og'
kindur.
Ö.varfi. Var algengt á þessu ári á piltum.
Seyðisfi. 1 drengur fékk granuloma i fingur, eftir að hafa hruflað
sig á kindarhorni.
Reyðarfi. Sjást nokkur tilfelli árlega í sláturtiðinni.
Síðu. 1 sjúklingur.
Mýrdals. 1 tilfelli í október.
Eyrarbakka. 3 tilfelli í haust.
17. Idiosyncrasia.
Ögur. Pollen-allergie (hayfever) 1, migraene 2. eczema 1 og urticaria
1. Hjá 3 af ofnæmissjúklingunum var með vissu skorið úr um orsölc-
ina. Kona um fertugt var of næm fyrir gramineae-pollen, sérstaklega
af poa-ættkvíslinni. Hef þegar hyrjað meðferð með extractum af pollen.
Kona um fimmtugt með migraene var of næm fyrir ýsu og karlmaður
um sextugt, líka með migraene, fyrir fleiri fisktegundum.
18. Ileus.
Borgarnes. Hef ekki séð þenna kvilla, síðan fyrsta mánuðinn, sem
ég var læknir, sem sé fyrir tæpum 40 árum. Dó þá miðaldra bóndi úr
garnaflækju á heiðarbýli vestur af Mývatni. Sé ég' enn eftir því, að ég'
skyldi ekki reyna að skera hann, þótt ekki væri hægt um vik.
Rangár. 1 stúlka, 11 ára, fékk ileus. Var samdægurs flutt á Lands-
spítalann og dó þar eftir nokkra daga.
19. Intoxicatio (við logsuðu).
Húsavikur. Að vetrarlagi í miklu frosti var maður að logsjóða inni
í húsi. Var hann við þetta á hverjum degi í 3 daga, en 3. daginn var
mest frost (16° C). Hafði hann kennt þess, er á dagana leið, að hann
varð einkennilega máttlaus og með höfuðverk, verri en hann hafði
átt vanda til. Að kvöldi 3. dagsins er hann orðinn svo veikur, að hann
kemst ekki heim hjálparlaus. Þegar heim kemur, mælir hann sig', og
er hitinn 40,7°. Hann þolir elcki við fyrir þrautum um allan líkam-
ann, en er þó verstur í höfðinu. Einnig seldi hann mikið upp. Ekki
hafði verið neitt athugavert við hægðir hans og maga, og hafði maður-
inn yfirleitt verið heilbrigður. Um kvöldið fékk hann óráð, sem stóð
þó ekki lengi. Þetta, sem hann var að logsjóða, var zinkblikk. Þegai'
ég heyrði þessa lýsingu alla, rak mig minni til, að ég' hafði í norsku
læknariti séð getið um svona tilfelli við logsuðu í kulda, ef hún var
framkvæmd inni í húsi, og var þar talið, að þetta stafaði af gaseitrun,
en gas þetta myndaðist helzt, ef kalt væri í veðri, og safnaðist fyrir
inni. Þessi sami maður sagðist hafa orðið þessa var veturinn áður
líka, en í minni stíl. 2 menn aðrir voru með honum við logsuðuna, en
þeir fóru út við og við. Fundu þeir nokkuð til samltynja einkenna, en
miklu væg'ari. Sjúklingurinn var nokkra daga að jafna sig', og var það
einlcum máttleysið, sem hélzt nokkuð lengi, og höfuðverkurinn.